Fréttir

true

Ríkið hefur skert framlög til Nátturustofu Vesturlands um 40%

„Framlög ríkisins til Náttúrustofu Vesturlands hafa skerst verulega frá því sem var þegar starfsemin var mótuð og skipulögð. Raun lækkun framlaga er um 40% sem gerir starfsemina mjög erfiða miðað við þau nauðsynlegu verkefni sem blasa við vegna rannsókna og vöktunar á viðkvæmum svæðum Vesturlands og Breiðafjarðar,“ segir í bókun sem stjórn Náttúrustofu Vesturlands samþykkti…Lesa meira

true

Vinabæjamót framundan í Borgarbyggð

Dagana 30. júní til 2. júlí næstkomandi verður haldið vinabæjamót í Borgarbyggð.  Sveitarfélagið Borgarbyggð og Borgarfjarðardeild Norræna félagsins hafa haft veg og vanda að undirbúningi mótsins. Tæplega 60 gestir frá vinabæjum Borgarbyggðar mun mæta á mótið. Vinabæirnir eru: Ullensaker í Noregi, Falkenberg í Svíþjóð, Odsherred í Danmörku og Eysturkommuna í Færeyjum. „Flestir gestanna er á…Lesa meira

true

Ætlar að halda sirkuslistarnámskeið í Borgarnesi

Húlladúllan Unnur María Bergsveinsdóttir heimsækir sinn gamla heimabæ í Borgarnesi fyrstu vikuna í júlí með sirkussmiðju fyrir börn og unglinga á aldrinum 8 – 14 ára. Þátttakendur geta þar kynnst töfrum sirkuslistanna á skemmtilegu viku löngu námskeiði. „Við munum húlla, djöggla slæðum, boltum og hringjum, leika okkur að þyrilstöfum og sveiflusekkjum, læra fimleikakúnstir, láta eins…Lesa meira

true

Ný hrina gagnagíslatöku í gangi

Spilliforrit, sem líklega beitir nýju afbrigði af hugbúnaði sem þekktur er undir nafninu „Petya“ herjar nú á tölvukerfi í nokkrum löndum, svo sem Danmörku, Bretlandi, Úkraínu og Rússlandi. Spilliforritið er gagnagíslataka, það er gögn viðkomandi tölvu eru dulrituð og krafist er lausnargjalds svo afkóða megi gögnin. Vísbendingar eru um að þetta afbrigði noti sömu smitleið…Lesa meira

true

Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á morgun

Á morgun klukkan 11 verður Bláfáninn dreginn að húni fimmta árið í röð við Langasand á Akranesi. Landvernd stendur að úthlutun Bláfánans og mun Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri veita Bláfánanum 2017 viðtöku við fánastöngina ofan við sturturnar á Langasandi. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda.…Lesa meira

true

Reykjavík sigraði víkingabardagann

Í níundu umferð Pepsideildar karla mættust í Fossvogi Víkingur Reykjavík og Víkingur Ólafsvík í gær. Víkingur Reykjavík hefur verið á góðu skriði eftir að Logi Ólafsson tók við liðinu eftir að Milos hætti skyndilega sem þjálfari þess í upphafi sumars. Víkingur Ólafsvík hafa verið í brasi í sumar og sat á botni deildarinnar fyrir leikinn…Lesa meira

true

Sigurfari stóð fyrir námskeiði í siglingum

Sigurfari – siglingafélag Akraness stóð fyrir námskeiði í siglingum á kænum um síðustu helgi. Fyrir þá sem ekki þekkja eru kænur litlir seglbátar sem bera einn til tvo og henta vel til siglingakennslu fyrir byrjendur. Kennari á námskeiðinu var Hilmar Páll Hannesson frá Siglingaklúbbnum Brokey í Reykjavík. Hilmar er reyndur siglingamaður og hefur bæði þjálfað…Lesa meira

true

Snæfellsnes annar flokkur enn án stiga

Snæfellsnes tók á móti Grindavík/GG í C-deild Íslandsmótsins í knattspyrnu 2. flokki karla á sunnudaginn. Bæði lið sóttu stíft í fyrri hálfleik og skoraði Grindavík gegn gangi leiksins í fyrri hálfleik. Bæði lið mættu ákveðin til leiks í seinni hálfleik en Snæfellsnes náði ekki að brjóta sóknarleik gestanna á bak aftur og endaði leikurinn 0…Lesa meira

true

Sundfólki frá Akranesi gekk vel á Aldursflokkameistaramótinu

Sundfólk frá Akranesi varð 34 sinnum í efstu sex sætunum, vann til tveggja silfurverðlauna og sex bronsverðlauna á Aldursflokkameistaramóti Íslands sem haldið var um liðna helgi í Laugardalslaug í Reykjavík. Sundfélag Akranes átti þar 24 keppendur á aldrinum 11-16 ára. Á mótinu tóku 270 sundmenn þátt og komu þeir frá 14 félögum. Í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Aðstaða verður bætt við Deildartunguhver

Nú í byrjun júlímánaðar munu Veitur ráðast í framkvæmdir við Deildartunguhver í Borgarfirði. Umtalsverðar endurbætur verða gerðar á aðstöðu fyrir ferðmenn við hverinn til að bæta öryggi þeirra. Á meðan á framkvæmdunum stendur verður aðgengi að hvernum takmarkað og vélar og tæki þar í notkun. Deildartunguhver í Borgarfirði er vatnsmesti hver landsins. Hverinn er auk…Lesa meira