Fréttir

true

Farið á fjörur – sýningaropnun í Akranesvita

Á sjómannadaginn, sunnudaginn 11. júní, verður í Akranesvita opnuð einkasýning á verkum Hildar Björnsdóttur og nefnist sýningin Farið á fjörur. Verkin eru unnin út frá ljósmyndum sem Hildur hefur tekið á Íslandi undanfarin ár, en Hildur er starfandi listakona í Noregi. Ljósmyndirnar hafa flestar verið teknar við sjávarsíðuna á Vesturlandi, þar sem landslagið og náttúran…Lesa meira

true

Gervigras verður lagt yfir Ólafsvíkurvöll í haust

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í byrjun þessa mánaðar var samþykkt að lagt verði gervigras yfir Ólafsvíkurvöll. Stefnt er að því að hefja framkvæmd að loknu keppnistímabili í haust og er áætlaður kostnaður 150 milljónir króna. Í fundargerð Snæfellsbæjar segir; „Með því að fara í þá framkvæmd þá nýtist núverandi aðstaða og jafnframt gætu allir flokkar…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá um sjómannadagshelgina

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 11. júní næstkomandi. Af því tilefni fara fram hátíðarhöld víðast hvar, þar á meðal í nokkrum byggðarlögum á Vesturlandi. Ýmislegt verður í boði yfir sjómannadagshelgina, þar á meðal í Grundarfirði, á Akranesi, í Stykkishólmi og Snæfellsbæ. Í Grundarfirði standa hátíðarhöldin yfir alla sjómannadagshelgina og hefjast í dag…Lesa meira

true

Nýr eigandi og Ferstikluskáli enduropnaður

Björn Páll Fálki Valsson, sem býr í Hvalfjarðarsveit, hefur keypt Ferstikluskála og opnað þar vegasjoppu. Með kaupunum fylgdi hús og lóð, en auk þess keypti hann Litla hvalasafnið sem verið hefur í húsinu og ýmsan búnað af fyrrum rekstraraðila, Kristjáni Karli Kristjánssyni. „Hér munum við verða með opið í sumar alla daga frá klukkan 10-19…Lesa meira

true

„Vil skapa eitthvað sem gefur lífinu lit“

Í Bílásshúsinu við Smiðjuvelli 17 á Akranesi hefur fatahönnuðurinn Guðrún Gerður Guðrúnardóttir komið sér vel fyrir og opnað vinnustofu. Guðrún starfar undir nafninu GAGA Skorrdal og hefur unnið við hönnun árum saman. Hún fer ótroðnar slóðir og leitar innblásturs úr íslenskri náttúru. Guðrún hefur verið búsett á Akranesi síðustu sjö mánuðina og opnaði vinnustofuna fyrir…Lesa meira

true

ON lýsir fullri ábyrgð á mengunarslysinu í Andakílsá

Í bréfi sem Bjarni Már Júlíusson forstjóri Orku náttúrunnar hefur ritað Umhverfisstofnun lýsir fyrirtækið fullri ábyrgð á því þegar 15-18 þúsund rúmmetrum af aur var hleypt úr uppistöðulóni Andakílsárvirkjunar og niður í Andakílsá dagana 15.-18 maí í vor. „Fyrirtækið mun leggja sig í líma við að hreinsa ána og umhverfi hennar sem best og svo…Lesa meira

true

Inga Elín gerði það gott á Smáþjóðaleikunum

Inga Elín Cryer sundkona af Skaganum keppti á Smáþjóðaleikunum sem fram fóru í San Marino í síðustu viku. Hún gerði gott mót. Varð í fjórða sæti í 200 metra flugsundi, í fimmta sæti í 100m flugsundi og í fyrsta sæti ásamt félögum sínum í 4x100m boðsundi þar sem stúlkurnar settu jafnframt mótsmet.Lesa meira

true

Siglt af stað frá Tyrklandi í kvöld – myndband

“Því fylgir vissulega mikill spenningur að taka við nýju og glæsilegu skipi. Þótt Sturlaugur H. Böðvarsson AK sé mjög gott skip, og hafi reynst HB Granda vel, þá er því ekki að leyna að það er komið til ára sinna,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Sturlaugi, en hann tekur í dag við skipstjórn á Akurey…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir við Fosshótel Reykholti

Í síðustu viku var Fosshótel Reykholti opnað að nýju eftir gagngerar endurbætur á húsum og lóð. Hafa framkvæmdir staðið yfir frá því í fyrrasumar. Í gær var svo hafist handa við að reisa fyrstu einingarnar í 28 herbergja viðbyggingu austan við hótelið. Eldra hluta hótelsins hefur verið breytt mikið, þ.á.m. matsal og eldhúsi, tekið var…Lesa meira

true

Þverá og Kjarará verða opnaðar á laugardaginn

Það má búast við fínni opnun í Þverá og Kjarará í Borgarfirði en veiði hefst þar á laugardaginn. Lax hefur fyrir þónokkru sést í ánni og í töluverðu magni. „Já, bæði Þverá og Kjarará verða opnaðar á laugardaginn. Við Ingólfur Ásgeirsson verðum saman á stöng,“ sagði Aðalsteinn Pétursson er við spurðum um opnun í ánum.…Lesa meira