Fréttir

true

Níu af hverjum tíu með hjálm

Tryggingafélagið VÍS hefur síðustu sex ár gert könnun á hjálmanotkun hjólreiðamanna, á sama tíma og átakið Hjólað í vinnuna hefur staðið yfir. Töluverð breyting hefur orðið á hjálmanotkun hjólreiðafólks á þessum sex árum. Í ár var hjálmanotkun könnuð hjá 1.304 einstaklingum og voru 89% þeirra með hjálm. Það hlutfall var einungis 74% fyrir sex árum.…Lesa meira

true

Byrjað að leggja rafstreng frá Ólafsvík

Nýverið hóf Steypustöð Skagafjarðar framkvæmdir við lagningu Grundarfjarðarlínu. Lagður verður 66 kW jarðstrengur milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar ásamt byggingu nýs tengivirkis í Ólafsvík. Með þessari framkvæmd mun afhendingaröryggi raforkudreifingar batna til muna á Snæfellsnesi. Vinna við undirbúning, hönnun og útboð vegna framkvæmdanna hófst árið 2015. Framkvæmdir hófust svo á síðasta ári með byggingu tengivirkis í…Lesa meira

true

Jónína Erna tók sæti á Alþingi í dag

Í dag tók Jónína Erna Arnardóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins sæti á Alþingi í fjarveru Haraldar Benediktssonar formanns fjárlaganefndar. Jónína Erna starfar sem tónlistarkennari og sveitastjórnarfulltrúi í Borgarbyggð. Hún er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og leiðsögumannanám frá sama skóla. Hún er gift Vífli Karlssyni hagfræðingi og á með honum tvö börn. Þetta er…Lesa meira

true

Hærri skattur á gistingu minnkar skatttekjur

„Tekjur hins opinbera munu minnka ef skattur á skráða gistingu verður hækkaður.“ Þetta kom fram í máli dr. Jeroen Oskam á hádegisfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem haldinn var í gær. Þessari þróun er spáð vegna fjölgunar óskráðra Airbnb gistirýma og möguleika þess iðnaðar að taka við fleiri gestum. Einnig kom fram á fundinum að fjöldi gistirýma…Lesa meira

true

Snæfell semur við sex leikmenn

Sex ungir og efnilegir körfuknattleiksmenn skrifuðu á miðvikudaginn samninga við Körfuknattleiksdeild Snæfells og munu leika með karlaliði félagsins í 1. deildinni á næsta ári. Gunnar Svanlaugsson, formaður kkd. Snæfells og Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, formaður aðalstjórnar félagsins, skrifuðu undir fyrir hönd þess. Leikmennirnir sem rituðu nafn sitt á samninga eru þeir Geir Elías Úlfur Helgason, Jón…Lesa meira

true

Hvassviðri spáð á morgun

Veðurstofan spáir að hvessi af austri í nótt um leið og skil lægðar koma úr suðri og fara yfir landið.  Frá klukkan sjö í fyrramálið má gera ráð fyrir hviðum í Mýrdal og undir Eyjafjöllum sem og í Öræfum við Sandfell allt að 35-40 m/s. Vindhraði verður í hámarki á milli kl. 09 og 11,…Lesa meira

true

Skagamenn í átta liða úrslit bikars í fyrsta sinn í áratug

Í gær tóku Skagamenn á móti Gróttu á Akranesvelli í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu karla. Ein deild skilur liðin að á Íslandsmótinu en Skagamenn spila í efstu deild og eru þar í næstneðsta sæti en Grótta er í níunda sæti fyrstu deildar. Það bjuggust því allir við auðveldum sigri Skagamanna þó ekkert sé…Lesa meira

true

Stefnt að byggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll á Akranesi

Á félagsfundi í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi 29. maí síðastliðinn var kynnt fyrir félagsmönnum staða í húsnæðismálum og samningaviðræður við Akraneskaupstað um byggingu nýrrar 960 m2 frístundamiðstöðvar við Garðavöll. Ef hugmyndir þessar ganga eftir mun Akraneskaupstaður verða eigandi hússins en golfklúbburinn umsjónar- og rekstraraðili þess. Golfklúbburinn kostar hins vegar hönnun mannvirkja, umsjón með verkinu, niðurrif…Lesa meira

true

„Allt í einu stóð ég aleinn eftir, fjórtán ára“

Ejub Purisevic er þjálfari Víkings Ólafsvíkur í Pepsideild karla í knattspyrnu. Flestir sem fylgjast með íslenskum fótbolta þekkja til kappans. Hann hefur spilað og þjálfað hérlendis allt frá því hann flutti til landsins frá Júgóslavíu árið 1992. Ejub hefur náð frábærum árangri með lið Víkings en liðið spilar í sumar sitt þriðja tímabil í efstu…Lesa meira

true

Stapinn er nýr veitingastaður á Arnarstapa

Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á nýjan veitingastað á Arnarstapa sem opnaður verður um sjómannadagshelgina. Staðurinn verður rekinn af fyrirtækinu Birkisól ehf., en að því standa hjónin Helga Birkisdóttir og Ólafur Sólmundsson, sem jafnframt reka Prímus Kaffi á Hellnum. Skessuhorn hitti Helgu að máli á föstudaginn og ræddi við hana um nýja…Lesa meira