Fréttir

true

Boðað verður til íbúakosningar vegna skotæfingasvæðis

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var samþykkt með sex atkvæðum að boðað verði til íbúakosningar um staðsetningu skotæfingasvæðis í landi Hamars við Bjarnhóla ofan Borgarness. Afar skiptar skoðanir hafa verið með staðsetningu æfingasvæðis á þessum stað vegna nálægðar við fólkvang og aðra útivist. Skrifleg mótmæli hafa borist gegn skotæfingasvæði á þessum stað, m.a. frá…Lesa meira

true

Hagnast um rúman milljarð á mánuði

Hagnaður Arion banka á fyrstu þremur mánuðum ársins nam 3,4 milljörðum króna samanborið við 2,9 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 6,3%, heildareignir námu 1.119 milljörðum króna í lok mars og eigið fé hluthafa bankans nam 214,6 milljörðum króna. „Efnahagur bankans er sterkur og hefur mikil áhersla verið lögð á…Lesa meira

true

NFFA kaus sér nýja stjórn

Nýverið var kosin ný stjórn Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands og voru úrslitin kynnt á aðalfundi NFFA. Guðjón Snær Magnússon hlaut flest atkvæði í kosningunni um formannssætið en meðstjórnendur eru Aðalbjörg Egilsdóttir, Sandra Ósk Alfreðsdóttir og Tómas Andri Jörgensen. Einnig var kosið um nýja formenn allra klúbba NFFA en þeir eru: Halla Margrét Jónsdóttir formaður tónlistarklúbbs, Aðalbjörg…Lesa meira

true

UST leggst gegn þjónustusvæði vegna ísgangafyritækis

Umhverfisstofnun leggst gegn fyrirhugaðri uppbyggingu vegna starfsemi á og við Langjökul. Ferðaþjónustufyrirtækið Into the Glacier, sem á og rekur ísgöngin í Langjökli, vill reisa 300 fermetra skemmu, 150 fermetra móttökuhús og koma fyrir tveimur 20 feta gámum sem nýttir verða fyrir starfsmannaaðstöðu ofarlega í Húsafellslandi. Fyrirtækið áætlar að nýta 13 hektara landsvæði úr landi Húsafells…Lesa meira

true

Vonbrigði að botnfiskvinnslu á Akranesi verði hætt

„Það eru mikil vonbrigði að botnfiskvinnsla HB Granda á Akranesi muni hætta,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, í samtali við Skessuhorn. „Hins vegar er ljóst að mikil tækifæri eru fólgin í áframhaldandi viðræðum við fyrirtækið. Þó er of snemmt að greina frá því hvaða kosti er verið að skoða, en ljóst er að…Lesa meira

true

Enn logar sinueldur en mannvirki eru úr hættu

Slökkvistarf í Eyja- og Miklaholtshreppi hefur gengið vel nú síðdegis, en töluvert stórt land er brunnið í umfangsmiklum sinubruna sem hófst um miðjan dag. Að sögn slökkviliðsmanna sem Skessuhorn hefur rætt við eru mannvirki ekki lengur í hættu, hvorki á Vegamótum né Lágafelli. Eldurinn er nú einangraður ofan við þjóðveg, en vestan við afleggjarann á…Lesa meira

true

Barist er við sinueld í Eyja- og Miklaholtshreppi

Eldur kom upp í sinu í mólendi skammt sunnan við Dal í Eyja- og Miklaholtshreppi um nónbil í dag. Eldurinn náði að breiðast hratt út enda töluverður vindur á svæðinu og jörð þurr. Um tíma var óttast um mannvirki á Vegamótum og gróðrarstöðinni á Lágafelli. Að sögn tíðindamanns Skessuhorns á svæðinu hefur nú tekist að…Lesa meira

true

Önnur starfsemi á Akranesi heldur áfram

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda sagði nú síðdegis í samtali við Skessuhorn að það hafi verið fyrst í gær sem endanleg ákvörðun hafi verið tekin um lokun bolfiskvinnslunnar á Akranesi. Nú liggur ákvörðun hins vegar fyrir og flyst vinnsla á þorski frá Akranesi og til Reykjavíkur 1. september. Vilhjálmur neitar því aðspurður að þessi vinnsla…Lesa meira

true

„Reiðarslag en gott að nú liggur þetta fyrir“

Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks í fiskvinnslu HB Granda á Akranesi, segir það að sjálfsögðu reiðarslag að fá tíðindi eins og þau að öllu starfsfólki á heilum vinnustað skuli vera sagt upp. „Samt var mesta áfallið búið að koma, það kom í mars þegar fyrirtækið tilkynnti okkur fyrst um áætlanir sínar. Nú þegar þetta liggur…Lesa meira

true

86 starfsmönnum HB Granda sagt upp

Forsvarsmenn HB Granda hafa tilkynnt fulltrúum Verkalýðsfélags Akraness og starfsmönnum í fiskvinnslu fyrirtækisins á Akranesi um uppsagnir 86 starfsmanna botnfiskvinnslu fyrirtækisins frá og með næstu mánaðamótum. Botnfiskvinnslunni á Akranesi verður lokað 1. september næstkomandi og hún sameinuð vinnslunni í Reykjavík. Greint var frá þessu á fundi forsvarsmanna fyrirtækisins með starfsmönnum sem hófst laust eftir kl. 15:00…Lesa meira