Fréttir

true

Dimiterað á Akranesi

Lokahóf útskriftarnema við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var haldið fimmtudaginn 4. maí síðastliðinn. Af því tilefni mættu útskriftarnemarnir í skólann klæddir sem Pokémonarnir Pikachu og Charmander. Hópurinn hóf daginn á því að bjóða starfsfólki skólans í morgunverð klukkan átta og í framhaldinu var skemmtun á sal. Að því loknu fór hópurinn í óvissuferð og gleðskapnum…Lesa meira

true

„Það verður æðislegt að byrja mótið“

„Sumarið leggst vel í mig, ekki spurning. Það er alltaf spenna sem fylgir því að byrja mótið,“ segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA, í samtali við Skessuhorn síðasta miðvikudag. ÍA mætir Tindastóli í fyrsta leik sumarsins í 1. deild kvenna föstudaginn 12. maí. Helena segir undirbúninginn ganga vel. „Liðið verður klárt og er í raun alveg…Lesa meira

true

Er viðbragðskerfið sprungið vegna fjölgunar ferðamanna?

Slysavarnafélagið Landsbjörg, Háskólinn á Akureyri og staða Nansen prófessors í heimskautafræðum standa í sameiningu fyrir ráðstefnu í tengslum við landsþing Landsbjargar sem haldið verður á Akureyri dagana 19. – 20. maí nk. Efni ráðstefnunnar nefnist: „Er viðbragðskerfið sprungið vegna fjölgunar ferðamanna á Íslandi?“ Þar verður fjallað um þær áskoranir sem viðbragðsaðilar standa frammi fyrir vegna…Lesa meira

true

„Stóra markmiðið að halda liðinu uppi“

„Þetta leggst ágætlega í mig, 1. deildin í ár verður líka alvöru deild, ekki riðlar eins og undanfarin ár. Það var algjörlega kominn tími til að breyta fyrirkomulaginu og sumarið verður ansi krefjandi fyrir ungan hóp,“ segir Björn Sólmar Valgeirsson, þjálfari Víkings Ó., í samtali við Skessuhorn. „Hópurinn er mjög ungur, við erum með sjö…Lesa meira

true

Söfnuðu fleiri tonnum af rusli úr fjörunni

Einhvern tímann var sagt að lengi tæki sjórinn við. Vissulega er mikið til í því, en hins vegar er umhverfismengun orðin þvílík að plast og annar manngerður úrgangur fyllir nú höfin og er að stofna lífríkinu í stórhættu. Nýlega kom fram í frétt Skessuhorns að því er spáð að árið 2050 verði jafnvel meira plast…Lesa meira

true

Snæfellsbær samþykkir nokkur rekstrarleyfi

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, sem haldinn var 4. maí sl., voru lögð fram fimm bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi með umsóknum um leyfi veitinga- og gististaða í Snæfellsbæ. Óskað var eftir umsögn bæjarstjórnar um umsókn Hellisbrautar 18 ehf. um rekstrarleyfi til reksturs minna gistiheimilis að Hellisbraut 18a á Hellissandi og að Munaðarhóli 16 á Hellissandi.…Lesa meira

true

Vilja rýmri opnun sundlaugar

Komandi ferðasumar var til umræðu á síðasta fundi menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar. Var meðal annars rætt um opnunartíma sundlaugarinnar á Laugum í Sælingsdal. Lagði nefndin til við sveitarstjórn að samningur Dalabyggðar við UMFÍ vegna sundlaugarinnar verði endurskoðaður með það að markmiði að laugin nýtist betur sem hluti innviða ferðaþjónustu í Dölum. Vakti nefndin athygli á…Lesa meira

true

Dellan tekin alla leið þegar afmælisbarnið fékk sér slökkvibíl

Kristján Andrésson húsasmíðameistari á Hvanneyri fagnaði í liðnum mánuði sextugsafmæli sínu. Líkt og gjarnan við slík tækifæri fá menn fallega pakka, blóm og frómar óskir. Ein gjöfin var þó sýnu umfangsmest, en hana gaf Kristján sjálfum sér. Það var eitt stykki slökkviliðsbíll. Bíll þessi þjónaði upphaflega Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli þar sem hann var fyrsti útkallsbíll…Lesa meira

true

Ætla að hjóla 1.300 kílómetra til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Í sumar munu Skagahjónin Guðrún Sigríður Gísladóttir og Guðmundur S. Jónsson hjóla um 1.300 kílómetra leið á einni viku, frá Kaupmannahöfn til Parísar, þegar þau taka þátt í einu stærsta samnorræna góðgerðaverkefni Norðurlandanna; Team Rynkeby. Um samhjól er að ræða en ekki keppni, þar sem allir þátttakendur hjóla alla leiðina. Ferðin er krefjandi hjólreiðaferð en…Lesa meira

true

Þróa vöru úr hildum sauðkindarinnar

Hópur nemenda í Háskólanum í Reykjavík hefur að undanförnu unnið að þróun á húðkremi sem unnið er úr hildum íslensku sauðkindarinnar. Kremið er unnið úr virkum efnum hildanna, eða fylgjunnar. Hópurinn á bakvið „Hildir Organics“ kemur úr mismunandi deildum innan Háskólans í Reykjavík en meðal hópfélaga er Sonja Lind Eyglóardóttir í Borgarnesi. Fylgja íslensku sauðkindarinnar…Lesa meira