Fréttir

true

Þorgrímur hlaut viðurkenningu Barnaheilla

Ólsarinn Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur, hlaut í síðustu viku viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2016. Í tilkynningu frá félagasamtökunum segir að Þorgrímur sé landsþekktur rithöfundur og hafi um langt skeið verið börnum góð fyrirmynd með jákvæðri afstöðu sinni til lífsins, heilbrigðu líferni og drifkrafti. Bækur hans, sem nú telja 23, þekkja velflestir…Lesa meira

true

Geðfræðsla í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðastliðinn þriðjudag komu þrír einstaklingar á vegum Hugarafls ásamt starfsmanni félagsins í heimsókn í FSN í Grundarfirði. Tilgangur heimsóknarinnar var að fræða nemendur um geðræn vandamál. Þessir þrír einstaklingar miðluðu af reynslu sinni í baráttunni við geðsjúkdóma ásamt því að svara nokkrum spurningum sem brunnu á nemendum. Óhætt er að segja að nemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga…Lesa meira

true

Ráðið í stöðu fjármálastjóra Akraneskaupstaðar

Staða fjármálastjóra Akraneskaupstaðar var auglýst laus til umsóknar í haust. Var það gert í kjölfar skipulagsbreytinga á stjórnsýslu- og fjármálasviði þegar ákveðið var að styrkja fjármáladeildina með tilfærslu verkefna innan bæjarskrifstofunnar. Alls sóttu 22 um starfið og nú hefur Þorgeir Hafsteinn Jónsson verið ráðinn fjármálastjóri bæjarins. Þorgeir er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá…Lesa meira

true

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

Félagsmálaráðherra hefur sett reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Óskert desemberuppbót er 60.616 kr. Nýmæli er að atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka uppbót sem nemur 4% af óskertri desemberuppbót, eða rúmum 2.400 kr. fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki…Lesa meira

true

Myndband – Verið að slökkva í síðustu glæðunum

Nú í birtingu dags er slökkvistarfi í fiskþurrkuninni á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi að ljúka. Slökkviliðsmenn eru að sprauta vatni á síðustu glæðurnar og vinnuvélar hreinsa svæðið. Slökkvistarf hefur gengið vel, en ljóst að tjónið er gríðarlegt. Á meðfylgjandi myndbandi sést nýjasta húsið í þyrpingunni, en því tókst blessunarlega að bjarga.Lesa meira

true

Skagamenn kræktu í fyrsta heimasigurinn

ÍA tók á móti liði FSu í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda. Hvorugt liðið náði að hrista hitt af sér, en liðin skiptust alls níu sinnum forystunni. Gestirnir frá Selfossi höfðu mest sex stiga forskot en ÍA mest sjö stiga forskot, en þannig var…Lesa meira

true

Vilja að hætt verði við gjaldtöku á rafrænum skilríkjum

Neytendasamtökin hafa á síðustu dögum átt í viðræðum við bankastofnanir, fjarskiptafyrirtæki og fyrirtækið Auðkenni vegna gjaldtöku á rafrænum skilríkjum. „Að mati Neytendasamtakanna fellur óverulegur kostnaður til hjá fjarskiptafyrirtækjum vegna notkunar neytenda á rafrænum skilríkjum og engar efnislegar forsendur standa til þess að láta neytendur greiða fyrir þá notkun. Notkun rafrænna skilríkja leiðir til verulegs hagræðis…Lesa meira

true

Stórbruni á Miðhrauni – fleiri myndir

Slökkvistarf í fiskþurrkuninni á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi gengur vel miðað við aðstæður, að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra. Nú á níunda tímanum segir Bjarni að byrjað sé að rjúfa byggingar og komast fyrir frekari útbreiðslu eldsins. Útlit er fyrir að náist að bjarga stærsta húsinu. Engu að síður segir Bjarni að tjónið sé…Lesa meira

true

Pantanir í Aðventublað þurfa að berast í síðasta lagi í dag

Hið árlega Aðventublað Skessuhorns kemur út næstkomandi miðvikudag. Að vanda verður um stórt og efnismikið blað að ræða og víða komið við í efnistökum. Meðal efnis verður farið yfir dagskrá og viðburði á Vesturlandi á aðventu og þéttur fréttapakki er nú sem fyrr. Aðal þema blaðsins verður viðtöl og frásagnir af ungu og athafnasasömu fólki…Lesa meira

true

Gríðarmikill eldur í fiskþurrkuninni á Miðhrauni

Mikill eldur er í byggingum fiskþurrkunarinnar á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Allt tiltækt slökkvilið frá Snæfellsnesi, Borgarbyggð og Akranesi var kallað út klukkan 4:50 í nótt. Það var flutningabílstjóri á leið um Snæfellsnesveg sem varð fyrstur var við eldinn og gerði Neyðarlínunni viðvart. Auk búnaðar slökkviliðanna af svæðinu hefur verið sendur af…Lesa meira