Fréttir

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn gerðu góða ferð norður yfir heiðar í gær þegar þeir sigruðu Þór Ak. í nýliðaslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Skallagrímur var sterkara liðið á vellinum, leiddi bróðurpart leiksins og sigraði að lokum með 90 stigum gegn 81. Borgnesingar mætti ákveðnir til leiks og náðu ellefu stiga forskoti eftir aðeins sjö mínútna leik. Þá…Lesa meira

true

Styrktarsamningur undirritaður

Forsvarsmenn körfuknattleiksdeildar Skallagríms í Borgarnesi og Límtrés Vírnets ehf. hafa ritað undir styrktarsamning þess efnis að fyrirtækið styrki rekstur körfuknattleiksdeildarinnar í vetur. Samningurinn var undirritaður fyrir síðasta heimaleik Skallagríms í Domino’s deild kvenna þegar liðið tók á móti Grindavík.  „Rekstur deildarinnar væri ekki mögulegur nema með dyggum stuðningi heimamanna,“ segir í tilkynningu á Facebook síðu…Lesa meira

true

Sex fyrirtæki fengu Ljósberann 2016

Viðurkenningin Ljósberi var afhent á Sauðamessu sem fram fór í Borgarnesi 1. október sl.  Viðurkenningin er afhent þeim fyrirtækjum og stofnunum í Borgarbyggð sem veita einstaklingum með fötlun atvinnu. Að þessu sinni fengu Leikskólinn Klettaborg, Leikskólinn Ugluklettur, Grunnskólinn í Borgarnesi, Safnahúsið, Hjúkrunarheimilið Brákarhlíð og N1 viðurkenninguna fyrir að veita störf allt árið og Golfklúbbur Borgarness…Lesa meira

true

Sýna í Átthagastofu vinnu prjónahóps RKÍ

Í síðustu viku var opnuð sýning á starfi prjónahóps Rauða Krossins í Átthagastofu Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Allt frá árinu 2012 hefur RKÍ hér á landi stutt við Rauða Krossin í Hvíta-Rússlandi með fatagjöfum og fjárstuðningi við valin verkefni. Í Snæfellsbæ sem og á mörgum fleiri stöðum á Íslandi hafa konur útbúið ungbarnapakka sem sendir eru…Lesa meira

true

Hæstiréttur þyngdi dóm í nauðgunarmáli

Hæstiréttur Íslands þyngdi í dag dóm yfir manni sem dæmdur var fyrir nauðgun í Héraðsdómi Vesturlands í febrúar síðastliðnum. Er honum gert að sæta fangelsi í tvö og hálft ár, en héraðsdómur hafði áður dæmd hann til tveggja ára fangelsisvistar. Í kjölfar niðurstöðu héraðsdóms skaut ríkissaksóknari málinu til Hæstaréttar 10. febrúar í samræmi við yfirlýsingu…Lesa meira

true

Krakkar í Borgarnesi tóku þátt í Norræna skólahlaupinu

Nemendur Grunnskólans í Borgarnesi hlupu Norræna skólahlaupið 17. október síðastliðinn. Norræna skólahlaupið fór fyrst fram á Íslandi árið 1984, en allir grunnskólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti. Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu og að…Lesa meira

true

Viðræður um sameiningu þriggja sveitarfélaga hefjast innan tíðar

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur falið bæjarstjóra að undirbúa viðræður við stjórnendur Grundarfjarðar og Helgafellssveitar um sameiningu sveitarfélaganna. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar voru skipaðir fulltrúar Stykkishólms í vinnuhóp um sameininguna. Þar með er undirbúningur fyrir sameiningarviðræður hafinn. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhorn fyrir helgi að búast mætti við því að formlegar viðræður um…Lesa meira

true

Bjartmar með tónleika í Logalandi

Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson ætlar að halda tónleika í Logalandi í Borgarfirði í kvöld kl. 21.00. Góð stemning var á síðustu tónleikum hans í Logalandi og má búast við enn meira fjöri nú, að sögn skipuleggjenda. En það er margt að gerast hjá Bjartmari um þessar mundir. Seinna í mánuðinum kemur út hjá bókaútgáfunni Sögum fyrsta…Lesa meira

true

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar í framlengingu

Skallagrímur mætti Keflavík suður með sjó í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Keflavík hafði yfirhöndina lungann úr leiknum en Skallagrímskonur komu til baka og náði að knúa fram framlengingu. Þær urðu þó á endanum að játa sig sigraðar því Keflavík hafði sigur, 81-70 Skallagrímskonur komu ákveðnar til leiks og höfðu yfirhöndina framan af…Lesa meira

true

Snæfell vann öruggan sigur á Haukum

Heil umferð var leikin í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfell mætti Hauka að Ásvöllum, en liðin mættust síðast í vor í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Snæfell hafði betur, eins og kunnugt er. Miklar breytingar hafa orðið á liði Hauka frá því í vor og liðið ekki talið jafn sterkt og þá.…Lesa meira