Fréttir

true

Útvarp Akranes verður í loftinu um helgina

Sundfélag Akraness sendir Útvarp Akranes út á aðventunni eins og venja er. Útvarpið er löngu orðinn fastur liður í jólaundirbúningi Akurnesinga en það er jafnframt ein mikilvægasta fjáröflun sundfélagsins. Félagið hefur staðið fyrir útvarpinu á aðventunni allar götur síðan 1988. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda en mikill fjöldi Akurnesinga og gesta hefur komið…Lesa meira

true

Tveggja ára samningur í burðarliðnum um gáma- og bátasvæðið á Breið

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðasta þriðjudag var farið yfir fyrirhugaðan samning Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi, Brims hf., Akraneskaupstaðar og Faxaflóahafna sf. varðandi afnot og rekstur lóðanna Hafnarbrautar 15 og Breiðargötu 3. Í honum kemur fram að á tíunda áratug síðustu aldar kom Akraneshöfn upp geymslusvæði fyrir gáma og báta á Breið á Akranesi. Síðustu…Lesa meira

true

Jólapeysudagur í FVA

Kennarar og nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi klæddu sig í sínar fínustu jólapeysur á alþjóðlega jólapeysudeginum, bara grín!, en hann var alla vega haldinn hátíðlegur í FVA í dag. Kennarar skólans tóku þátt af fullum krafti eins og þeim er einum lagið en nemendur eitthvað minna enda oft nóg að muna eftir skólatöskunni, hvað…Lesa meira

true

Óska eftir skýringum vegna hækkunar á gjaldskrá strætisvagna

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 23. nóvember síðastliðinn var lögð fram áætlun frá formannafundi UMSB þar sem óskað var eftir stuðningi sveitarfélagsins við að koma til móts við ferðakostnað barna og ungmenna vegna æfinga og keppni. Í fundargerð segir að mikilvægt sé að börn og unglingar hafi tækifæri til að stunda íþróttir á jafnræðisgrunni. „Borgarbyggð hefur…Lesa meira

true

Margt rætt á fundi skóla- og fræðslunefndar

Á fundi skóla- og fræðslunefndar sveitarfélagsins Stykkishólms 21. nóvember sl. fór Heimir Eyvindarson skólastjóri grunnskólans yfir starfsemi skólans og lagði fram skýrslu til kynningar. Umræða skapaðist um lestrarstefnu og eineltisáætlun sem skólastjóri sagði að væru í endurskoðun hjá skólanum. Einnig var rætt um hvort breyta ætti fyrirkomulagi danskennslu við skólann. Eins og oft áður var…Lesa meira

true

Kveikt á jólatrénu í Hvalfjarðarsveit

Í gær var kveikt á jólatrénu við Stjórnsýsluhúsið í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Í tilefni af því komu börn af leikskólanum Skýjaborg í heimsókn og voru viðstödd þegar kveikt var á trénu. Jólatréð er núna á nýjum stað og er á Vinavelli sem er nýtt útivistarsvæði í Melahverfi. Eftir að hafa sungið og gengið í kringum…Lesa meira

true

Nálgast að fimmti partur komi erlendis frá

Alls voru 73.638 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. nóvember síðastliðinn, samkvæmt samantekt Þjóðskrár. Hafði þeim fjölgað um 9.053 einstaklinga frá 1. desember 2022, eða um 14%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.542 einstaklinga, eða um 0,5%. Íslendingar búsettir hér á landi eru nú 81,5% þjóðarinnar og fólk af erlendu…Lesa meira

true

Kortlögðu farsímanotkun grunnskólanema í skólum

Í októbermánuði síðastliðnum framkvæmdi umboðsmaður barna könnun meðal allra grunnskóla á landinu þar sem spurt var um reglur varðandi farsíma í skólum. Niðurstöður könnunarinnar hafa verið birtar í skýrslu. Af þeim 129 skólum sem svöruðu könnuninni voru reglur um símanotkun í 126 skólum og nemendur höfðu komið að gerð reglnanna í 72 (59%) skólum. Spurt…Lesa meira

true

Sýndu afrakstur söngleikjasmiðju

Krakkarnir í söngleikjasmiðju Grunnskóla Grundarfjarðar sýndu nemendum og starfsfólki skólans afrakstur smiðjunnar síðastliðinn föstudag. Þau settu saman atriði sem innihélt söng, dans og leik. Fram kemur á heimasíðu skólans að krakkarnir hafi fengið innblástur úr söngleiknum Matthildi og varð útkoman mjög skemmtileg. Hæfileikaríkir krakkar þarna á ferð enda atriðið aðeins æft í tvöföldum smiðjutíma einu…Lesa meira

true

Fengu sér hæfilega mikið á diskinn

Í nýliðinni viku var matarvigtunarvika í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þar sem nemendur og starfsmenn hugsuðu vel um að fá sér hæfilega mikið á diskinn til að koma í veg fyrir matarsóun. Nemendur í 10. bekk stóðu sig best og leifðu engu alla vikuna. Þeir fá því að velja hádegismat og eftirrétt í viðurkenningarskyni. Samtals leifðu…Lesa meira