Fréttir

true

Nafni Samkaup verslana breytt í Kjörbúðin

Öllum Samkaup Úrval og Samkaup strax verslunum verður á næstu mánuðum breytt og munu mynda nýja keðju undir heitinu Kjörbúðin. Samkaup reka um fimmtíu verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa fram að þessu hafa verið Nettó, Samkaup úrval, Samkaup strax og Krambúð. Starfsmenn keðjunnar eru 900 í…Lesa meira

true

Ungir Gamlir í Bíóhöllinni

Síðastliðinn þriðjudag fóru fram tvennir tónleikar í Ungir – Gamlir í Bíóhöllinni á Akranesi. Verkefnið er árlegt samstarfsverkefni grunnskólanna í bæjarfélaginu og Tónlistarskóla Akraness. Fluttur var fjöldi söngatriða þar sem nemendur komu fram einir eða í misstórum hópum. Kynnir var Samúel Þorsteinsson tónlistarkennari, en um undirspil sá húsbandið sem að stórum hluta er skipað félögum…Lesa meira

true

Umferð um Snæfellsnes hefur tvöfaldast á þremur árum

Uppbygging ferðaþjónustu í Snæfellsbæ hefur verið mikil á þessu ári. Svæðið nýtur vinsælda meðal ferðafólks sem einkum sækir það heim vegna náttúrufegurðar og þjóðgarðsins, en ekki síst vegna vaxandi þjónustu sem sífellt er verið að bæta við. Fjölgun ferðamanna er auðveldast að mæla í umferð. Samkvæmt umferðartölum Vegagerðarinnar hefur aukningin orðið gríðarleg á Snæfellsnes. Umferðarteljari…Lesa meira

true

Síðasta sumar hrapaði bæði fjöldi heimsókna og útlána

Bókasafn Grundarfjarðar flutti haustið 2013 í Sögumiðstöðina í Grundarfirði þar sem fyrir voru upplýsingamiðstöð, Bæringsstofa ljósmyndasafn, kaffihús og sýningar Sögumiðstöðvar. Á sumrin er þröng á þingi, húsið er þétt setið ferðamönnum sem sækja upplýsingamiðstöðina, kaffihúsið og Sögumiðstöðina heim. Hefur það orðið til þess að heimsóknum heimamanna á bókasafnið hefur snarfækkað. „Síðasta sumar varð algjör sprenging…Lesa meira

true

Rök fyrir vegarlagningu um Teigsskóg

Vegagerðin kynnti í síðustu viku matsskýrslu sína vegna lagningar nýs Vestfjarðavegar númer 60 milli Bjarkalundar og Skálaness í Reykhólahreppi. Í niðurstöðukafla skýrslunnar, sem telur á fjórða hundrað blaðsíður, er lagt mat á þá valkosti sem eru til staðar, en eins og kunnugt er leggur Vegagerðin til að nýr vegur verði lagður um Teigsskóg. „Ákvörðun um…Lesa meira

true

Samþykkja að breyta reglum um niðurgreiðslur

Skóla- og frístundaráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að breyta reglum um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum frá og með 1. janúar 2017. Ákvörðunin var tekin á fundi ráðsins síðasta þriðjudag en Akraneskaupstað hafði nýverið borist áskorun vegna málsins frá foreldrum, þar sem skorað var á bæjaryfirvöld að auka niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldrum og rýmka…Lesa meira

true

Úthlutað úr Styrktarsjóði Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að veita átta aðilum styrki úr Styrktarsjóði Hvalfjarðarsveitar. Alls bárust 14 umsóknir í sjóðinn. Alls er úthlutað 590 þúsund krónum úr sjóðnum í þetta skipti. Hæsti styrkurinn hljóðar upp á 150 þúsund krónur og rennur hann til Skógræktarfélags Skilmannahrepps vegna umhirðu á skógræktarreit. Skógarmenn KFUM fá 100 þúsund krónur vegna nýbyggingar…Lesa meira

true

Finnski karlakórinn KYL heldur tónleika í Vinaminni

Finnski karlakórinn KYL er væntanlegur til Íslands nú í byrjun nóvembermánaðar og mun halda tvenna tónleika hér á landi. Aðrir þeirra verða í Vinaminni á Akranesi sunnudaginn 6. nóvember og bera yfirskriftina „Þetta er Finnland“. Þeir tónleikar eru ætlaðir sem kynning á ríkri hefð kórtónlistar í Finnlandi. Þar fá áheyrendur að heyra verk eftir helstu…Lesa meira

true

Nafn Gunnars Braga oftast strikað út

Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis hefur skilað gögnum til landskjörstjórnar og Hagstofunnar um fjölda útskrikana í kjördæminu í kosningunum 29. október sl. Þar kemur fram að langflestar útstrikanir á lista fékk Gunnar Bragi Sveinsson oddviti Framsóknarflokks, eða 371. Það jafngildir 10,65% atkvæða en flokkurinn fékk 3.482 atkvæði. Elsu Láru Arnardóttur, sem skipar annað sæti listans, strikuðu hins vegar…Lesa meira

true

Vilja byggja reiðskemmu á Æðarodda

Forsvarsmenn Hestamannafélagsins Dreyra hafa að undanförnu kynnt stjórnendum Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar erindi félagsins um byggingu reiðhallar á Æðarodda, skammt utan Akraness. Skessuhorn hitti Ásu Hólmarsdóttur formann Dreyra og Sigurð Arnar Sigurðsson formann reiðhallarnefndar, og fræddist um áform félagsmanna. Þau hafa undanfarið, ásamt Hrafni Einarssyni varaformanni, kynnt erindið fyrir bæjaryfirvöldum. „Erindi okkar um byggingu reiðhallar hefur…Lesa meira