Fréttir

true

Breytingar samkvæmt nýjustu tölum eru Framsókn í hag

Nú hafa verið talin 5.000 atkvæði í Norðvesturkjördæmi, en á kjörskrá voru 21.479. Atkvæði hafa fallið þannig:   A listi: 227 atkvæði B listi: 941 atkvæði: 2 þingsæti (-2) C listi: 303 atkvæði D listi: 1.497 atkvæði: 3 þingsæti (+1) E listi: 18 atkvæði F listi: 127 atkvæði P listi: 523 atkvæði: 1 þingsæti (+1)…Lesa meira

true

Nýjar tölur úr NV kjördæmi

Nú hafa verið talin 3.500 atkvæði í NV kjördæmi. 21.479 voru á kjörskrá. Atkvæði hafa fallið þannig: A listi: 191 atkvæði. 1 þingsæti (+1) B listi: 569 atkvæði. 1 þingsæti (-3) C listi: 218 atkvæði. D listi: 1.048 atkvæði. 3 þingsæti (+1) E listi: 8 atkvæði F listi: 102 atkvæði P listi: 378 atkvæði. 1 þingsæti…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur með þrjá þingmenn í NV

Fyrstu tölur úr talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi gefa til kynna miklar sviptingar á fylgi flokka. Á kjörskrá voru 21.479. Eftir að 2.000 atkvæði höfðu verið talin er niðurstaðan þessi: A listi: 112 atkvæði (0) +/- 0 B listi: 319 atkvæði (1) -3 C listi: 137 atkvæði (1) +1 D listi 654 atkvæði (3) +1 E…Lesa meira

true

Kosið til Alþingis í dag

Íslendingar ganga í dag til kosninga og kjósa 63 þingmenn. Hér í Norðvesturkjördæmi eru tíu flokkar í kjöri. Þeir eru, í stafrófsröð eftir listabókstaf: A-listi Bjartrar framtíðar, B-listi Framsóknarflokks, C-listi Viðreisnar, D-listi Sjálfstæðisflokks, E-listi Íslensku þjóðfylkingarinnar, F-listi Flokks fólksins, P-listi Pírata, S-listi Samfylkingarinnar, T-listi Dögunar og V-listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Kjörstaðir verða víða opnir…Lesa meira

true

Spáð er allhvössu framan af degi

Veðurstofa Íslands spáir að seint í nótt hvessi í veðri. Búist er við vaxandi austanátt, 15-23 sunnan- og vestantil í fyrramálið með slyddu og síðar talsverðri rigning. Hlýnandi veður. Austan 8-15 m/sek norðan- og austanlands eftir hádegi og rigning, en hvassara við ströndina annað kvöld. Dregur úr vindi og úrkomu um landið sunnan- og vestanvert…Lesa meira

true

Þungu fargi létt af bæjarsjóði Akraneskaupstaðar

Síðar í dag verður skrifað undir samkomulag þess efnis að ríkissjóður taki yfir lífeyrisskuldbindingar þeirra hjúkrunarheimila sem fram til þessa hafa verið rekin með ábyrgð sveitarfélaga. Hér er einungis um hluta hjúkrunarheimila í landinu að ræða þar sem lífeyrisskuldbindingar margra þeirra höfðu áður verið færðar til ríkisins. Heildarlífeyrisskuldir þessara sveitarfélaga vegna reksturs hjúkrunarheimila voru um…Lesa meira

true

Afturkalla ekki byggingarleyfi fyrir hótel

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram bréf frá Advel lögmönnum fyrir hönd Borgarlands ehf. þar sem farið er fram á afturköllun byggingarleyfis að Borgarbraut 59 og stöðvun framkvæmda við Borgarbraut 57 í Borgarnesi. Á fundinum fór Guðrún Hilmisdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs yfir erindi Borgarlands og hvernig því verður svarað. Fram kom…Lesa meira

true

Prjóna- og heklæði í Auðarskóla

Á yngsta stigi í Auðarskóla hefur gripið um sig hannyrðaæði en þar sjást bæði strákar og stelpur nýta frítíma sinn í að prjóna og hekla. Starfsfólkið hefur brugðist við þessum áhuga með því gera garn og áhöld aðgengileg fyrir nemendur í miðrýminu og án efa á það sinn þátt í að hvetja fleiri nemendur til…Lesa meira

true

Misstu boltann og þar með sigurinn úr greipum sér

Skallagrímur tók á móti ÍR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Bæði lið höfðu einn sigur hvort eftir þrjá leiki og gátu með sigri lyft sér upp að miðri stigatöflunni. Skallagrímur byrjaði mjög vel en að lokum voru það ÍR-ingar sem fóru með sigur af hólmi 78-84. Skallagrímsmönnum gekk illa að höndla með…Lesa meira

true

Snæfell varð að lúta í gras eftir framlengingu

Á miðvikudagskvöld fóru Snæfellskonur suður með sjó og öttu kappi við Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Snæfell lék án Taylor Brown, sem er farin heim til Bandaríkjanna af persónulegum ástæðum og leikur ekki meir með liðinu. Leikurinn á miðvikudag var jafn og spennandi og þurfti að framlengja til að knýja fram sigurvegara. Að…Lesa meira