
Hinrik Örn Bjarnason hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Eðalfangs ehf. Um er að ræða nýtt stöðugildi innan samstæðu Eðalfangs, en Hinrik var áður framkvæmdastjóri N1 ehf. Hinrik hóf störf þann 2. apríl síðastliðinn en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Eðalfang er móðurfélag matvælafyrirtækjanna Norðanfisks ehf. á Akranesi og Eðalfisks ehf. í Borgarnesi.…Lesa meira








