
Í liðinni viku voru höfð afskipti af 26 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Jafnframt voru meint hraðabrot mynduð hjá 67 ökumönnum með færanlegri hraðamyndavél. Fjórir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur í vikunni og einn ökumaður sem lögregla hafði afskipti af reyndist sviptur ökuréttindum.Lesa meira








