Fréttir

true

Er sjálfstæð manneskja og þakklát fyrir ákveðið uppeldi sem hún hlaut

Guðríður Sigurðardóttir er fædd að Stóru-Giljá 19. júní árið 1935. Bærinn er í þjóðbraut rétt við austanvert mynni Vatnsdals í Húnavatnssýslu. Þaðan var fyrsti kristniboðinn á Íslandi, Þorvaldur Koðránsson hinn víðförli, sem ferðaðist um landið nokkru fyrir árið 1000 með saxneskum biskupi, sem Friðrik hét, og boðaði kristna trú. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði.…Lesa meira

true

Nýjar reglur auðvelda matvælavinnslu í smáum stíl

Ný reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli tók gildi 17. október síðastliðinn. Markmið reglugerðarinnar er að auka sveigjanleika í lítilli og hefðbundinni matvælaframleiðslu til að auðvelda framleiðendunum að uppfylla kröfur matvælalöggjafarinnar. Reglugerðin felur í sér talsverðar nýjungar fyrir lítil matvælafyrirtæki þar sem vinnsla matvæla er hliðarbúgrein með annarri starfsemi. Hún veitir afslátt af ákveðnum…Lesa meira

true

Bræður eignuðust barn sama daginn

Tilviljun réði því að bræðurnir Sigurður og Kristján Guðmundssynir frá Hvanneyri eignuðust báðir barn á sjúkrahúsinu á Akranesi síðastliðinn mánudag. Á sunnudagskvöldið snæddu þeir kvöldverð hjá foreldrum sínum, ásamt barnsmæðrum sínum, og þegar þeir kvöddust þá um kvöldið áttu þeir ekki von á því að lenda saman á fæðingadeildinni. Þó var vitað að annað barnið…Lesa meira

true

Bændur verða að hafa einhvern ávinning af lífrænni framleiðslu

  „Ég held að við séum innan við tíu sem höfum lífræna vottun,“ segir Sigurður Jakobsson bóndi á Varmalæk í Bæjarsveit í Borgarfirði í samtali við Skessuhorn. Sauðfjárbúið á Varmalæk er eitt fárra slíkra á landinu sem hefur lífræna vottun og hefur haft undanfarin þrjú ár. „Hér var byrjað á þessu fyrir nokkrum árum þegar…Lesa meira

true

Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum

Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) var haldinn um liðna helgi. Dagskrá hátíðarinnar var með nokkuð hefðbundnu sniði, en hún hefur markað sér sess sem fjölsótt og menningarleg héraðshátíð. Á hádegi á föstudaginn hófst lambhrúta- og gimbrasýning norðan girðingar á Svarfhóli í Laxárdal. Sviðaveisla með hagyrðingum og dansleik var í íþróttahúsinu á Laugum í Sælingsdal…Lesa meira

true

Nágrönnum boðið í heimsókn

Nýverið bauð sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í heimsókn kjörnum fulltrúum og framkvæmdastjórum í nágrannasveitarfélögunum; Akraneskaupstað, Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Móttaka fyrir hópinn var í Heiðarskóla og þaðan var haldið í Bugavirkjun þar sem Leirárgarðabændur kynntu virkjunina og þá starfsemi sem þar fer fram. Því næst var haldið að Hlöðum þar sem gestir fengu leiðsögn um safnið og kynningu…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur og Píratar stærstir

Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 19. til 26. október mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur flokka með 21,9% fylgi. Píratar koma næstir með 19,1% fylgi og Vinstri-grænir eru þriðji stærsti flokkurinn með 16,0% fylgi. Framsóknarflokkurinn mældist nú með 10,0%, Vireisn með 9,3% og Björt framtíð 8,8%. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 7,6% og fylgi Flokks fólksins mældist 3,4%.…Lesa meira

true

Innritunarfyrirtæki greiða ekki fyrir þjálfun nýrra starfsmanna

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði í gær frá því að honum hefði borist símtal frá tveimur konum af Reykjanesi sem störfuðu í sumar við innritun flugfarþega á Keflavíkurflugvelli. Þrátt fyrir að vera ekki félagsmenn í VLFA vildu konurnar leita upplýsinga um réttindi þeirra og skyldur hjá utanaðkomandi verkalýðsfélagi um hvort það stæðist lög og…Lesa meira

true

Hlutfall atvinnulausra þrjú prósent

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 195.000 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í september 2016, sem jafngildir 82,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 189.300 starfandi og 5.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3%. Samanburður mælinga fyrir september 2015 og 2016 sýnir…Lesa meira

true

Taylor Brown hætt hjá Snæfelli

  Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur rift samningi sínum við bandaríska leikstjórnandann Taylor Brown og leikur hún því ekki meira með liðinu í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Taylor er þegar farin heim til Bandaríkjanna og er brottför hennar af persónulegum ástæðum. Frá þessu var greint á heimasíðu Snæfells í gær. Taylor skoraði 24,1 stig, tók 4,8…Lesa meira