
Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 18. apríl, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 18. apríl, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

Margar fyrirspurnir hafa á síðustu dögum borist Sorpurðun Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum vegna áhyggna fólks um að riðusmitað fé úr Miðfirði verði urðað í Fíflholtum. Eina sorpbrennsla landsins er biluð og þarf því að finna önnur úrræði til að farga fénu. Niðurstaðan er þess vegna sú að urða hræ fjárins frá Syðri-Urriðaá. Fram kemur…Lesa meira

Um miðjan maí á síðasta ári hófst jarðvinna á vegum Fasteflis ehf. á Sementsreitnum svokallaða á Akranesi. Að sögn Óla Vals Steindórssonar hjá Upprisu byggingafélagi gengur verkið mjög vel en komin er vel af stað bygging á fyrstu 33 íbúðunum með bílakjallara af 112 íbúða verkefni. Óli Valur segir að íbúðirnar séu byggðar á hönnun…Lesa meira

Fundaferð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um sjálfbært Ísland hófst á Akureyri í gær. Um er að ræða sjö opna samráðsfundi þar sem fjallað verður um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun. Meðal funda sem ráðherra boðar til er einn í Hjálmakletti í…Lesa meira

Framkvæmdir við Borgarbraut í Borgarnesi hafa verið í gangi frá því á síðasta ári. Fram kemur á vef Borgarbyggðar að staðan á verkefninu núna sé gróflega sú að þó ekki hafi tekist að ljúka öllum yfirborðsfrágangi við verkáfanga 1 um síðustu áramót þá hafi tekist að vinna helming af verkáfanga 2 og er verkið því…Lesa meira

Að sníða sér stakk eftir vexti Verkefnastjórinn Hlédís Sveinsdóttir hefur víða komið við á Vesturlandi. Hún er uppalin að Fossi í Staðarsveit, bjó á unglingsárunum í Stykkishólmi og settist að á Akranesi upp úr þrítugu, með nýfædda dóttur sína. Hún var háseti á bát sem gerður var út frá Arnarstapa, var framkvæmdastjóri Sauðamessu í Borgarnesi…Lesa meira

Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps lýsir sig tilbúna til viðræðna um leigu á fasteignum sveitarfélagsins í Laugargerðisskóla til eins árs. Svo er bókað í fundargerð 4. fundar sveitarstjórnar sem fram fór föstudaginn 14. apríl síðastliðinn. Það voru foreldrar barna í Laugargerðisskóla og óstofnað ehf. sem gerðu sveitarfélaginu kauptilboð í allar eignir sem tilheyra Laugargerðisskóla 3. apríl…Lesa meira

Ellefu sundmenn frá Sundfélagi Akraness, 10-15 ára, tóku þátt í Ármannsmótinu sem fram fór í Laugardalslaug um helgina. Sundfólkið átti mörg góð sund með góðum bætingum. Þetta var fyrsta keppnin í 25m laug þetta árið. Bætingar voru mjög góðar og uppskeran var 50 bætingar í 58 sundum. Tveir sundmenn nældu sér í lágmörk á AMI:…Lesa meira

Grundarfjarðarbær hefur fest kaup á bifreið fyrir Slökkvilið Grundarfjarðar sem bætir aðbúnað liðsins töluvert. Hann mun leysa gamlan Ford Econoline af hólmi, en sá bíll var kominn töluvert til ára sinna. Nýi bíllinn var keyptur frá slökkviliðinu í Vík og er af gerðinni Ford F350 árgerð 2007. Hann mun nýtast sem tækjabíll með klippibúnað og…Lesa meira

Hamar og Skallagrímur mættust í lokaleik í riðli 4 í C deild Lengjubikars karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Domusnovavellinum í Breiðholti. Skallagrímur var án sigurs í riðlinum á meðan Hamar hafði unnið einn leik. Heimamenn komust yfir eftir tæpan hálftíma leik með marki Sigurðar Ísaks Ævarssonar en þremur mínútum fyrir hálfleik…Lesa meira