Frá framkvæmdum við Borgarbraut. Ljósm. borgarbyggd.is

Framkvæmdir við Borgarbraut í Borgarnesi á undan áætlun

Framkvæmdir við Borgarbraut í Borgarnesi hafa verið í gangi frá því á síðasta ári. Fram kemur á vef Borgarbyggðar að staðan á verkefninu núna sé gróflega sú að þó ekki hafi tekist að ljúka öllum yfirborðsfrágangi við verkáfanga 1 um síðustu áramót þá hafi tekist að vinna helming af verkáfanga 2 og er verkið því í raun komið lengra en gert var ráð fyrir í upphaflegum verkáætlunum.

Framkvæmdir við Borgarbraut í Borgarnesi á undan áætlun - Skessuhorn