Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni.

Riðufé verður urðað innan smithólfsins

Margar fyrirspurnir hafa á síðustu dögum borist Sorpurðun Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum vegna áhyggna fólks um að riðusmitað fé úr Miðfirði verði urðað í Fíflholtum. Eina sorpbrennsla landsins er biluð og þarf því að finna önnur úrræði til að farga fénu. Niðurstaðan er þess vegna sú að urða hræ fjárins frá Syðri-Urriðaá.

Fram kemur á vefsíðu RÚV í morgun að urðunarstaður hafi fundist seint í gærkvöldi. Niðurstaða málsins er að féð verður flutt í sláturhúsið á Hvammstanga, það aflífað, sýni tekin og hræin sett í lekahalda gáma. Þaðan verða þau svo flutt á urðunarstað að Syðri-Urriðaá þar sem upp kom riðusmit í lok síðustu viku. Frá þessu greinir Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir.

Hrefna Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands, segir margar fyrirspurnir hafa borist til sín undanfarna daga varðandi málið. ,,Urðunarstaðurinn í Fíflholtum er staðsettur á hreinu svæði svo það hefur aldrei komið til greina að urða riðusmitað fé hjá okkur í Fíflholtum. Við höfum þó verið að fá fjölda fyrirspurna frá fólki sem hefur áhyggjur af því að þetta hafi verið til umræðu. Nú hefur ákvörðun verið tekin og féð verður urðað að Syðri-Urriðaá í Miðfirði svo féð mun ekki fara út fyrir varnarlínu smithólfsins,“ segir Hrefna í samtali við Skessuhorn.

Riðufé verður urðað innan smithólfsins - Skessuhorn