Fréttir

true

Afþreying í frímínútum hefur breyst eftir símabann

Nemendur á unglingastigi Grunnskóla Snæfellsbæjar finna sér ýmislegt til að gera í frímínútum og láta símaleysi ekki trufla sig. Mikið hefur lifnað yfir á göngum skólans eftir að símabann var sett 1. apríl á síðasta ári og eru nemendur t.d. duglegir að spila á spil, tefla eða leika borðtennis. Margir verja einnig frímínútum á bókasafninu…Lesa meira

true

Enn til skoðunar að kaupa ferjuna Röst

Vegagerðin greindi frá því í gær á heimasíðu sinni að Ferjan Baldur er biluð. Fyrirhugaðar ferðir yfir Breiðafjörð féllu því niður í gær og falla ferðir Baldurs einnig niður í dag og á morgun. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir í samtali við Skessuhorn að stefnt sé að því að Baldur verði klár til siglinga…Lesa meira

true

Afmælisútgáfa í dag

Skessuhorn þessa vikuna er töluvert stærra í síðum talið en venjulega. Meðal efnis í blaðinu er upprifjun í máli og myndum um sitthvað sem tengist útgáfusögunni, en næstkomandi laugardag verða 25 ár frá því fyrsta tölublað Skessuhorns kom út. Auk hefðbundinna frétta vikunnar og innblaðsefnis er meðal annars rætt við ungt fólk í landshlutanum um…Lesa meira

true

Stjórnarkjör framundan hjá Stéttarfélagi Vesturlands

Í Skessuhorni í dag auglýsir Stéttarfélag Vesturlands kosningu meðal félagsmanna um þrjá nýja aðila í stjórn félagsins. Framboðslistum þarf að skila fyrir 23. febrúar. Kosið er til þriggja trúnaðarstaða til tveggja ára, en þrír núverandi stjórnarmanna gefa ekki kost á sér áfram. Það eru þau Signý Jóhannesdóttir, Baldur Jónsson og Jónína Heiðarsdóttir. Hafa þau öll…Lesa meira

true

Báðum tilboðum í rekstur og þjónustu hafnað

Tilboð í rekstur og þjónustu Hvalfjarðargangna 2023-2025 voru opnuð 17. janúar 2023. Í aðalatriðum felst verkið í útkallsþjónustu, umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað, reglubundnu eftirliti og viðhaldsvinnu á búnaði. Tveir verktakar buðu í verkið; Meitill -GT tækni ehf. á Akranesi sem áður hefur séð um þjónustu í Hvalfjarðargöngum og Rafal ehf., í Hafnarfirði. Vegagerðin áætlaði…Lesa meira

true

Vegir víða skemmdir eftir vatnavextina

Vegir eru víða skemmdir eftir leysingar síðustu daga. Pálmi Sævarsson svæðisstjóri Vegagerðarinnar segir tjónið hlaupa á tugum milljóna króna. ,,Mest er tjónið í Dölunum þar sem ástandið á vegum er alls konar en verið er að meta skemmdir betur þessa dagana,“ sagði Pálmi í samtali við Skessuhorn fyrr í dag. „Snæfellsvegurinn fór svo í sundur…Lesa meira

true

Stefnt að samningsgerð um hönnun viðbyggingar

Í fundargerð byggingarnefndar viðbyggingar Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum frá 7. febrúar sl. kemur fram hverjir lægstbjóðendur voru í verk á arkitekta- og landslagshönnun sem og verkfræðihönnun á fyrirhugaðari viðbyggingu við grunnskólann. Fjórir aðilar buðu í hvort verkefnið fyrir sig. Í arkitekta- og landslagshönnun viðbyggingarinnar var lægstbjóðandi Arkitektastofan OG ehf. með tilboð upp á tæpar 29…Lesa meira

true

SSV fær 16 milljóna styrk fyrir verkefnum í Dalabyggð

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur úthlutað styrkjum að upphæð 130 milljónum króna til tólf verkefna á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og segir á vef Stjórnarráðsins að þeim sé úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036. Alls bárust 32 umsóknir um styrki…Lesa meira

true

Markaðsstofa Vesturlands á fimm landa vinnustofu í London

Markaðsstofa Vesturlands tók þátt í hinni árlegu fimm landa vinnustofu í London sem Íslandsstofa skipulagði í samstarfi við Visit Finland, Visit Greenland, Visit Faroe Islands og Visit Estonia. Á vef SSV segir að um fimmtíu ferðaþjónustuaðilar frá löndunum fimm hafi tekið þátt. Þar á meðal voru fjórtán íslensk fyrirtæki og tvær markaðsstofur sem nýttu tækifærið…Lesa meira

true

Vatn komst inn í mannvirki í flóðunum

Vatnavextir síðustu daga hafa víða skapað vandamál en m.a. hafa mannvirki orðið fyrir vatnstjóni. Bærinn Ferjukot stendur eins og kunnugt er á bökkum Hvítár í Borgarfirði en þar flæddi inn í gamla íbúðarhúsið í gærkvöldi. ,,Það byrjaði að flæða inn hérna um klukkan hálf sjö en vatn kom inn um veggi og gólf, svo þetta…Lesa meira