
Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þóra er þekkt fjölmiðla- og heimildarmyndagerðarkona og hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í um aldarfjórðung. Hún hefur unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV, síðustu ár sem ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks. Þóra var einnig stundakennari við Háskóla Íslands um árabil…Lesa meira








