Fréttir

true

Grundaskóli á Landsmót barnakóra

Tónlistarkennarinn Valgerður Jónsdóttir heldur utan um kórastarf í Grundaskóla og er góð virkni í starfinu. Nú hefur verið ákveðið að taka þátt á Landsmóti barnakóra sem haldið verður í lok apríl á þessu ári. Kór Grundaskóla endar því þennan vetur með stórtónleikum og verður þema landsmótsins að þessu sinni Eurovision lög.Lesa meira

true

Samkomulag undirritað vegna hjúkrunarheimilis

Á fundi velferðar- og jafnréttismálanefndar Stykkishólmsbæjar 24. janúar síðastliðinn var lagt fram undirritað samkomulag um framlengingu á samningi um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimilis að Skólastíg 14 og samningi Stykkishólmsbæjar og heilbrigðisráðuneytisins um flutning á þjónustunni til HVE. Velferðar- og jafnréttismálanefnd lagði til að nýr forstöðumaður þjónustumiðstöðvar aldraðra yrði ráðinn sem fyrst. Einnig lagði nefndin til…Lesa meira

true

„Sund er frábær íþrótt á allan hátt“

Rætt við Ágúst Júlíusson formann Sundfélags Akraness Sundfélag Akraness var stofnað árið 1948. Í handbók félagsins segir að markmið þess sé að að efla öryggi og sundkunnáttu barna, að stuðla að auknum áhuga og bættum árangri iðkenda á sundíþróttinni, að iðkendur hafi áhuga og ánægju af því að æfa sund, að vekja metnað og auka…Lesa meira

true

Felldu niður ferð Baldurs í dag og flýta í fyrramálið

Vegna veðurs var ferðum Baldurs yfir Breiðafjörð aflýst í dag. „Gangi veðurspá eftir verður ferðum morgundagsins, 3. febrúar, flýtt um klukkustund, frá Stykkishólmi kl. 8:00 og frá Brjánslæk kl. 11:00,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Í morgun biðu alls sex flutningabílar á bryggjunni í Stykkishólmi eftir að komast með Baldri og þrír bílar að auki…Lesa meira

true

Bæjarráð ítrekar sinn vilja að endurgera Árnahús

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 27. janúar síðastliðinn kom fram í umræðu um Árnahús á Sólmundarhöfða 2 að bæjarráð ítrekaði vilja sinn til endurgerðar Árnahúss í samvinnu við Minjastofnun Íslands og framkvæmdinni verði háttað þannig að það hindri ekki möguleikann á stækkun fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili. Fram kemur í fundargerð að fyrir liggi drög að…Lesa meira

true

Lífið er núna dagurinn verður 9. febrúar

Nú stendur yfir fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja nýjar Lífið er núna húfur og vekja athygli á þeim áskorunum sem verða á vegi fyrir þau sem greinast með krabbamein sem og aðstandendum og hvernig Kraftur getur stutt við þau með…Lesa meira

true

Gular viðvaranir og fremur slæm veðurspá

Til klukkan 18 í kvöld er spáð hvassri austanátt og slyddu eða snjókomu við Breiðafjörð; lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Hlýnar heldur og breytist í suðaustan rigningu í kvöld. Við Faxaflóa verður í dag austan- og suðaustan 15-23 m/s og snarpar vindhviður við fjöll. Slydda eða snjókoma í fyrstu og síðan rigning. Varasamt fyrir ökutæki…Lesa meira

true

Sveitarstjórn unga fólksins fundar 16. febrúar

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 26. janúar sl. lagði ungmennaráð Borgarbyggðar fram tillögu að sveitarstjórnarfundi unga fólksins. Hugmyndin var samþykkt og tímasetning ákveðin fyrir fyrsta fund. ,,Byggðarráð samþykkir hugmynd ungmennaráðs um að haldinn verði sveitarstjórnarfundur unga fólksins fimmtudaginn 16. febrúar kl. 16.00. Fundinum verður streymt eins og venja er með sveitarstjórnarfundi,“ segir í fundargerð.Lesa meira

true

Átti fyrir leigubíl af vettvangi

Aðfararnótt föstudags í liðinni viku var Lögreglan á Vesturlandi við umferðarlit við Hvalfjarðargöng til að athuga með ástand ökumanna og ökuréttindi. Þeir stöðvuðu þar för ökumanns sem reyndist vera án gildra ökuréttinda og þurfti hann að hætta akstri. Farþegi í bifreiðinni, sem var með gild ökuréttindi, tók við akstrinum en ökumaðurinn á von á alla…Lesa meira

true

Afmælisblað í stóru upplagi 15. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar nk. verða rétt 25 ár síðan Skessuhorn kom fyrst út. Blaðið sem verður gefið út miðvikudaginn 15. febrúar verður að hluta helgað afmælinu og sögu fyrirtækisins. Þá verða samkvæmt venju fréttir og viðtöl víðs vegar af Vesturlandi. Þetta tölublað verður prentað í sérstöku auka upplagi, en auk hefðbundinnar dreifingar til áskrifenda, verður…Lesa meira