Fréttir

true

Aukinn kvóti til Ólafsvíkur

Útgerðarfélagið Steinunn ehf. hefur lagt grunn að auknum umsvifum sínum í Ólafsvík með kaupum á fiskveiðiheimildum sem nema ríflega 100 þorskígildistonnum af Saltveri ehf. í Reykjanesbæ fyrir um 300 milljónir króna. Kvótanum verður bætt við veiðiheimildir vertíðarbátsins Steinunnar SH-167 og aukast með þeim umsvif útgerðarinnar til muna ásamt verkefnum nálægrar landvinnslu. Kaupin eru gerð í…Lesa meira

true

Vatnslitasýningin Blæbrigði opnuð á laugardaginn í Safnahúsi Borgarfjarðar

Fimmta samsýning Vatnslitafélags Íslands verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi næstkomandi laugardag klukkan 14 og verður opin í fjórar vikur á opnunartíma safnist, eða til 21. október. Sýningin hefur hlotið nafnið Blæbrigði en á henni má finna verk eftir 45 vatnslitamálara. „Okkur sem eru í stjórn félagsins fannst kominn tími til að…Lesa meira

true

Ný grunnsýning opnuð á laugardaginn í Norska húsinu í Stykkishólmi

Ný grunnsýning verður opnuð laugardaginn 23. september kl. 14:30 í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin leysir af hólmi fyrri grunnsýningu safnsins sem staðið hefur yfir á miðhæð hússins síðan 2001. Í tilkynningu frá Norska húsinu segir að byggðasafnið hafi hlotið öndvegisstyrk Safnaráðs árið 2020 til að ráðast í gerð nýrrar…Lesa meira

true

Aukið fjármagn til riðuvarna

Í nýju frumvarpi til fjárlaga er gert ráð fyrir aukinni fjárveitingu upp á 110 milljónir króna til innleiðingar verndandi arfgerða gegn riðuveiki. Gert er ráð fyrir að aukningin mæti kostnaði við arfgerðagreiningu til að innleiða megi sem hraðast verndandi arfgerðir í íslenska sauðfjárstofninn. Þetta er í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá því í vor. Í…Lesa meira

true

Bálhvasst á Snæfellsnesi

Leiðindaveður er nú á Snæfellsnesi og verður það fram eftir morgundeginum einnig ef marka má veðurspá. Í morgun fóru norðaustan vindhviður yfir 30 metra á sekúndu en núna er 21 metri á Fróðárheiði og 16 metrar á Gufuskálum með vindhviðum upp í 22 metra. Eins og er er lítið sjóveður en stærri línubátar eru þó…Lesa meira

true

Eigendur OR samþykkja hlutafjáraukningu í Ljósleiðaranum

Á hluthafafundi Ljósleiðarans ehf. í síðustu viku var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um hlutafjáraukningu upp á 3,2 milljarða króna, en það svarar til 33,3% aukningar hlutafjár. Að baki fyrirtækisins er OR sem aftur er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Stjórn félagsins skal ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör hinna nýju hluta og í hvaða áföngum heimildin…Lesa meira

true

Ný skýrsla um viðhorf til atvinnu, vörumerkja og nátturuperlna

Hjá SSV er komin út skýrslan: „Viðhorf til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperla og sögustaða á Vesturlandi“ eftir Bjarka Þór Grönfeldt. Um skýrsluna segir: “Í henni eru tekin saman gögn um viðhorf Íslendinga til fjarvinnu, vörumerkja, náttúruperlna og sögustaða á Vesturlandi. Þessum gögnum var safnað til hliðar við ímyndarkönnun Vesturlands 2023 sem kom út í vor, þar…Lesa meira

true

Stefnt á opnun nýja íþróttahússins vorið 2025

Opnað var fyrir útboð á innanhússfrágangi við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi í síðustu viku og verða tilboðin opnuð 19. október næstkomandi. Samkvæmt útboðsgögnum á að afhenda kjallararými mannvirkisins 30. janúar árið 2025 og allt húsið í lok maí sama ár. Að sögn Ásbjörns Egilssonar, verkefnastjóra á umhverfis- og skipulagssviði Akraneskaupstaðar, varðandi frágang á…Lesa meira

true

Fyrsta ball haustsins í FVA verður á fimmtudagskvöldið

Fyrsti dansleikur skólaársins í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi verður haldinn í skólanum fimmtudagskvöldið 21. september frá kl. 21 til miðnættis. Til langs tíma voru böllin haldin í Gamla Kaupfélaginu en það húsnæði er úr leik í bili. Stjórn nemendafélags skólans hefur lagt nótt við dag undanfarið við undirbúninginn. Páll Óskar mætir á svæðið ásamt DJ…Lesa meira

true

Límtré Vírnet eykur við vottun fyrirtækisins

Límtré Vírnet ehf. er í dag með vottað stjórnkerfi í samræmi við ISO 9001:2015, jafnlaunavottum samkvæmt ÍST 85 og er með CE vottanir á framleiðslu á límtré og yleiningum. Unnið hefur verið að þessum vottunum með aðkomu fyrirtækisins Versa Vottunar frá árinu 2021. „Þessi vottun tryggir öflugt og faglegt stjórnkerfi yfir allt fyrirtækið og tryggir…Lesa meira