
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var að tilkynna um þá ákvörðun sína að leyfa að hvalveiðar hefjist að nýju í fyrramálið. Þetta tilkynnti hún eftir ríkisstjórnarfund sem fram fór á Egilsstöðum. Núverandi hvalveiðileyfi gildir til áramóta. Leyfið nú verður gefið út með reglugerð í dag þar sem sett eru ítarleg skilyrði um mjög strangt eftirlit með veiðunum.…Lesa meira








