Fréttir

true

Styrkir til tannréttinga nær þrefaldast frá morgundeginum

Gerð hefur verið breyting á reglugerð um þátttöku Sjúkratrygginga ríkisins í kostnaði við tannlækningar. Nú nær þrefaldað styrkir til almennra tannréttinga frá því sem verið hefur. Hækkunin tekur gildi á morgun, 1. september. Styrkir til tannréttinga eru tvískiptir. Styrkur til meðferðar í bæði efri og neðri góm hækkar úr 150.000 kr. í 430.000 kr og…Lesa meira

true

Veiðar með ströngum skilyrðum

Ný reglugerð um hvalveiðar, sem matvælaráðherra hefur undirritað, á að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Reglugerðin felur í sér ítarlegar og hertari kröfur til veiðibúnaðar, veiðiaðferða og aukið eftirlit með hvalveiðum. Skilyrðin snúa m.a. að þjálfun, fræðslu, veiðibúnaði og veiðiaðferðum. Matvælastofnun og Fiskistofa munu vinna saman að eftirliti með veiðunum. Ráðgert er að stofnanirnar sendi…Lesa meira

true

Ákvörðun ráðherra að hvalveiðar fari af stað í fyrramálið

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var að tilkynna um þá ákvörðun sína að leyfa að hvalveiðar hefjist að nýju í fyrramálið. Þetta tilkynnti hún eftir ríkisstjórnarfund sem fram fór á Egilsstöðum. Núverandi hvalveiðileyfi gildir til áramóta. Leyfið nú verður gefið út með reglugerð í dag þar sem sett eru ítarleg skilyrði um mjög strangt eftirlit með veiðunum.…Lesa meira

true

Gul viðvörun fylgir fyrstu haustlægðinni annað kvöld – jafnframt stórstreymt

Veðurstofa Íslands varar við fyrstu haustlægðinni, sem fer yfir landið annað kvöld, föstudag, og fram á laugardagsmorgun. Á spásvæðunum Faxaflóa og Breiðafirði er gert ráð fyrir suðaustan 15-23 m/s og rigningu. Hvassast verður á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi, eins og algengt er í þessari vindátt. Búast má við hviðum að 40 m/sek.…Lesa meira

true

Málþing í dag til heiðurs dr Bjarna Guðmundssyni

Í dag klukkan 13 hefst í Ásgarði á Hvanneyri málþingið Landbúnaður í gegnum safn og skóla. Það er haldið til heiðurs Bjarna Guðmundssyni fv. prófessor sem fyllti 80 árin fyrr í þessum mánuði. Að þingingu stendur Landúnaðarsafn Íslands í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands. “Bjarni hefur verið ötull í rannsóknum á landbúnaðarsögu landsins og á heiðurinn…Lesa meira

true

Beðið með öndina í hálsinum

Innan stundar er þess að vænta að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynni ákvörðun sína um hvort hvalveiðar verði leyfðar frá 1. september eftir tímabundið bann sem hún setti 20. júní síðastliðinn. Ríkisstjórnin heldur árvissan sumarfund sinn í dag og er hann á Egilsstöðum. Ef hvaðveiðibann verður ekki framlengt rennur það út á miðnætti og eru starfsmenn…Lesa meira

true

Vel sótt námskeið hjá Siglingadeild Snæfells í sumar

Í júní í sumar hélt Siglingadeild Snæfells í Stykkishólmi fjögur námskeið fyrir börn á aldrinum 10 – 15 ára þar sem farið var í grunnþætti siglinga á Topaz skútum, kynnst kajak siglingum og sullað í sjónum. Námskeiðin voru öll vel sótt og tókst vel til. Leiðbeinendur á námskeiðunum voru ungmenni á vegum vinnuskóla sveitarfélagsins. Ungmennin,…Lesa meira

true

Laus er staða verslunarstjóra Olís í Borgarnesi

Olís óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling í starf verslunarstjóra í Borgarnesi. Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri þjónustustöðvarinnar og vinnur með samhentum hópi starfsmanna. Störfin eru fjölbreytt þar sem á stöðinni er bæði veitingastaðurinn Grill 66 og Lemon Mini. Umsóknarfrestur er til 15. september, en umsóknir sendist á  https://jobs.50skills.com/olis/is -fréttatilkynningLesa meira

true

Endurheimt vistkerfa er ný alþjóðleg námsbraut við LbhÍ

Samhliða því að kennsla hófst við Landbúnaðarháskóla Íslands nú í ágúst fór í gang ný alþjóðleg námsbraut um endurheimt vistkerfa. „Meistaranám í endurheimt vistkerfa við LbhÍ er tveggja ára þverfaglegt nám sem veitir alþjóðlega innsýn og þekkingu á sviði vistheimtarfræði og hagnýta þjálfun í aðferðafræði endurheimtar. Nemendur öðlast þekkingu og reynslu af skipulagi, framkvæmd, vöktun,…Lesa meira

true

Tillögur að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tók í gær við skýrslu stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Hlutverk hópsins var að kortleggja og greina þjónustuþörf barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir. Honum var falið að endurskoða fyrirkomulag úrræða og þjónustu í þessum málaflokki, með réttindi barna og aðgengi þeirra að…Lesa meira