
Endurbætur á ljósbogaofni í verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga standa nú yfir. „Elkem á Íslandi hefur ákveðið að flýta áformum um endurbætur á einum af ljósbogaofnum sínum á Grundartanga í þeim tilgangi að bæta rekstraröryggi, hagkvæmni og auka öryggi starfsfólks. Fjárfesting félagsins vegna endurbótanna nemur 100 milljónum norskra króna, eða um 1,2 milljarði íslenskra króna.…Lesa meira








