Fréttir

true

Bambahúsi komið fyrir í skógræktinni á Akranesi

Síðastliðinn föstudag var Bambahúsi sem leikskólinn Akrasel keypti fyrr í sumar komið fyrir í Skógræktinni á Akranesi. Húsið verður notað í umhverfismenntarvinnu og ævintýraferðir leikskólans. Þarna verður hægt að rækta grænmeti og blóm meðal annars. Börnin munu verða í aðalhlutverki í nýtingu hússins, þar munu þau hafast við að planta, vökva og passa upp á…Lesa meira

true

Tólf kvígur týndar í Norðurárdal

Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal auglýsti um miðja síðustu viku eftir fjórtán kvígum sem hurfu úr girðingu við bæinn helgina áður. Mánudaginn 21. ágúst fundust þær í fjallgirðingu við bæinn Krók, innar í dalnum. Kvígurnar voru reknar áleiðis heim en þurftu heimamenn að skilja við hópinn við bæinn Hól þegar komið var myrkur.…Lesa meira

true

Hjúkrunarrýmum fjölgað á Brákarhlíð

Í lok síðustu viku náðist samkomulag milli stjórnar Brákarhlíðar í Borgarnesi og heilbrigðisráðuneytisins um fjölgun hjúkrunarrýma á Brákarhlíð. Fjölgunin felst í að fimm dvalarrýmum heimilsins verður breytt í fimm hjúkrunarrými fyrir Landspítala og því til viðbótar fær Brákarhlíð tvö ný varanleg hjúkrunarrými. „Samkomulagið gerir ráð fyrir að Brákarhlíð geti nýtt biðhjúkrunarrýmin fimm ef Landspítalinn nýtir…Lesa meira

true

Skagamenn komnir upp að hlið Aftureldingar eftir sigur á Selfossi

ÍA og Selfoss áttust við á Akranesi í Lengjudeild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Norðurálsvelli. Fyrir leik var mínútu þögn til að minnast Einars Skúlasonar sem lést laugardaginn 19. ágúst en Einar var mikill stuðningmaður félagsins í gegnum tíðina. Fyrsta færi leiksins fékk fyrrum leikmaður ÍA, Guðmundur Tyrfingsson, á elleftu mínútu…Lesa meira

true

Minningartafla baráttumanns

Bókaútgáfan Sæmundur undirbýr nú útgáfu á skáldsögu eftir Kristján L. Guðlaugsson (1949-2023) blaðamann sem einnig var þekktur baráttumaður vinstri manna að fornu og nýju. „Kristján bjó seinustu ár sín á Spáni með eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Huld Sveinsdóttur. Andlát hans bar brátt að í júní síðastliðnum og var undirbúningur skáldsögunnar Draumur Jórsalafarans þá á lokastigi.…Lesa meira

true

Skallagrímur með dramatískan sigur á Álftanesi

Það var alvöru dramatík og nóg af mörkum í leik Álftaness og Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu sem fram fór síðasta fimmtudag á OnePlus vellinum á slóðum forsetans. Heimamenn höfðu veika von með að halda sér uppi með sigri en Skallarnir vissu það að þeim nægði jafntefli til að halda sæti sínu í…Lesa meira

true

Samþykkja tilboð í ræstingar

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt tilboð Sólar ehf. um ræstingar á stofnunum Borgarbyggðar, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. ,,Þá samþykkir byggðarráð framlögð drög að þjónustusamningi við Sólar ehf. um ræstingar á stofnunum Borgarbyggðar og felur sveitarstjóra að fullvinna og undirrita með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Að mati byggðarráðs gefur tilboð Sólar ehf.…Lesa meira

true

Kári með góðan sigur á Ými

Eftir að hafa fengið aðeins eitt stig af níu mögulegum úr síðustu þremur leikjum sínum var ljóst að leikmenn Kára ætluðu sér ekkert annað en sigur þegar þeir mættu botnliði Ýmis í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn í Akraneshöllinni. Káramenn stilltu upp nokkuð breyttu liði frá síðasta leik þar sem fjórir leikmenn voru…Lesa meira

true

Víkingur gerði jafntefli við Sindra

Sindri og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Jökulfellsvellinum á Höfn í Hornafirði. Gestirnir komust yfir á 17. mínútu með marki frá Luke Williams en Björgvin Ingi Ólason jafnaði metin fyrir Sindra á lokamínútu fyrri hálfleiks, staðan 1-1. Abdelhadi Khalok kom síðan Víkingi aftur yfir á…Lesa meira

true

Dagsferð um söguslóðir í Hvítársíðu

Litla menntabúðin er áhugamál hjónanna Ingibjargar Kristleifsdóttur og Halldórs Gísla Bjarnasonar á Húsafelli. Þau hafa starfað að menntamálum alla sína starfsævi en eru nú sest að á Húsafelli, á æskustöðvum Ingibjargar. Litla menntabúðin var á tímabili fyrir Covid staðsett í Reykholti er nú að lifna við með heimilisfang á Húsafelli. Nú ætla þau að sinna…Lesa meira