Fréttir

true

Niðurrif að hefjast á húsi KFUM & K

Í næstu viku stendur til að byrja að rífa innan úr KFUM & K húsinu sem stendur við Garðabraut 1 á Akranesi og í kjölfarið er ætlunin að rífa húsið. Í síðustu viku var komið með skúra á svæðið sem koma til með að vera skrifstofur og einnig matar- og kaffiaðstaða fyrir iðnaðarmenn Byggingarfélagsins Bestlu…Lesa meira

true

Fjórði tapleikur Reynis í röð

Reynir Hellissandi tók á móti toppliði RB í A riðli 5. deildar karla á föstudagskvöldið og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Gestirnir úr Reykjanesbæ skoruðu tvö mörk í uppbótatíma fyrri hálfleiks og þriðja markið á þeirri fyrstu í seinni hálfleik, staðan 0-3 fyrir RB og staðan ekki góð fyrir Reyni. En þeir neituðu að gefast upp…Lesa meira

true

Fyrsta tap ÍA kom á móti Völsungi

Völsungur og ÍA mættust í 2. deild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Húsavík. Völsungskonur komust yfir strax á sjöttu mínútu þegar þær fengu ódýra aukaspyrnu sem Krista Eik Harðardóttir tók og skoraði hún beint úr spyrnunni. Þrátt fyrir að ÍA væri mun meira með boltann og hefði sótt mun meira í…Lesa meira

true

Nýtt nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf

SÁÁ hefur samið við Símenntun Háskólans á Akureyri um nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf. Byrjað verður að kenna í haust og uppfyllir námið fræðilegan hluta af skilyrðum til löggildingar sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi. Starfsnám verður áfram hjá SÁÁ. Í tilkynningu vegna nýja námsins kemur fram að sérfræðingar SÁÁ annast kennsluna og verður kennt í lotum…Lesa meira

true

Víkingur Ó. tapaði á móti KFA fyrir austan

Knattspyrnufélag Austfjarða og Víkingur Ólafsvík tókust á í toppbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og var viðureignin í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Zvonimir Blaic kom heimamönnum á bragðið á 17. mínútu og staðan í hálfleik 1-0 KFA í vil. Um miðjan seinni hálfleik fóru hlutirnir að gerast. Tvö rauð spjöld fóru á loft á…Lesa meira

true

Mikill hasar og dramatík í leik Kára og Kormáks/Hvatar

Kári og Kormákur/Hvöt áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn í Akraneshöllinni. Leikurinn fór fjörlega af stað, spennustigið var mjög hátt og þó nokkuð um pústra milli leikmanna liðanna. Káramenn vildu fá vítaspyrnu eftir um tíu mínútna leik þegar þeir töldu að það hefði verið brotið á Guðfinni Þór…Lesa meira

true

Grímur AK á gjöfulum ufsamiðum

Ekki er nýlunda að strandveiðibáturinn Grímur AK-1 sé með aflahærri bátum sem landa á Arnarstapa. Á Stapanum lönduðu 34 bátar í vikunni sem leið. Feðgarnir Stefán Jónsson og Árni Freyr sonur hans róa á Grími og gera út frá Arnarstapa á sumrin. Hafa þeir löngum verið með aflahæstu smábátum á strandveiðum á A svæði og…Lesa meira

true

N1 undirbýr sölu á 98 oktana bensíni í Borgarnesi

Eins og fjallað hefur verið um í Skessuhorni hefur hið nýja E10 bensín, sem sett var á tanka allra olíufélaganna í vor, leitt til alvarlegra gangtruflana m.a. í garðsláttuvélum og öðrum tækjum sem ekki eru gerð fyrir veikari orkugjafa. Þá er ekki mælt með notkun þessa bensíns á marga eldri bíla. N1 hyggst nú koma…Lesa meira

true

Síkisbrúin akfær í lok júnímánaðar

Vegna mikilla vatnavaxta í vor hafa orðið tafir á byggingu bráðabirgðarbrúar yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði. „Brúin verður að öllum líkindum opnuð fyrir umferð síðustu vikuna í júní. Meðan á framkvæmdum stendur er Hvítárvallavegur (510) við Ferjukotssíki lokaður,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar vinnur nú að því að byggja bráðabirgðabrúna en hún verður einbreið…Lesa meira

true

Tölfræði um nýafstaðið löggjafarþing

Þingfundum 153. löggjafarþings Alþingis var frestað 9. júní síðastliðinn. Þingið var að störfum frá 13. september til 16. desember 2022 og frá 23. janúar til 9. júní sl. Í samantekt skrifstofu Alþingis kemur fram að þingfundir voru 123 og stóðu í 659,5 klukkustund. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 19 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í…Lesa meira