
Grímur AK á gjöfulum ufsamiðum
Ekki er nýlunda að strandveiðibáturinn Grímur AK-1 sé með aflahærri bátum sem landa á Arnarstapa. Á Stapanum lönduðu 34 bátar í vikunni sem leið. Feðgarnir Stefán Jónsson og Árni Freyr sonur hans róa á Grími og gera út frá Arnarstapa á sumrin. Hafa þeir löngum verið með aflahæstu smábátum á strandveiðum á A svæði og með þeim hærri á landsvísu. Í síðustu viku voru tvær landanir úr Grími en ótíð olli því að einungis var hægt að róa tvo fyrstu daga vikunnar. Alls var landað úr bátnum ríflega 4,8 tonnum, og þar af tæpum 3,3 tonnum af ufsa, sem gerði bátinn þann aflahæsta á Stapa þá vikuna. Reyndar var að sögn Stefáns fyrsti róður mánaðarins sá gjöfulasti, en fimmtudaginn 1. júní lönduðu þeir feðgar alls 2,6 tonnum og fengust þá 306 krónur fyrir stærri ufsann. Aflaverðmætið úr þeim túr var um 900 þúsund krónur. Í fyrri löndun sinni í síðustu viku var ufsi 1.480 kíló úr Grími og í þeirri síðari daginn eftir 1.801 kíló. Fleiri strandveiðisjómenn leggja áherslu á að róa á þekkt ufsamið og hafa nokkrir þeirra náð góðum árangri í sumar.