
Ársreikningur Eyja- og Miklaholtshrepps fyrir árið 2022 var samþykktur samhljóða í sveitarstjórn fimmtudaginn 11. maí sl. Reikningurinn er nú aðgengilegur á vef sveitarfélagsins. Þar kemur fram að rekstrartekjur á árinu námu 183,6 milljónum króna fyrir A og B hluta en tekjur A hluta námu 181,1 milljón króna. Álagningarhlutfall útsvars var 14,52% sem er lögbundið hámark.…Lesa meira








