Fréttir

true

Hálka á vegum olli óhöppum

Nokkur óhöpp urðu á mánudaginn vegna mikillar hálku sem var víða á vegum á Vesturlandi. Meðal annars fór bifreið út af og endaði á hvolfi utan vegar milli Vegamóta og Heydalsvegar nærri bænum Dalsmynni og kom ökumaður sér sjálfur á slysadeild til skoðunar. Á Snæfellsnesvegi við Þverárveg lentu tveir bílar saman og var annar þeirra…Lesa meira

true

Hvað þýðir samræmd móttaka flóttafólks á Akranesi?

Þann 16. mars í vetur undirritaði Akraneskaupstaður samning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks. Segir í samningnum að markmið samræmdrar móttöku sé að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að. Samkvæmt samningnum, sem gildir til tveggja ára, skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að…Lesa meira

true

Einar Rúnar lætur af störfum hjá N1 í Ólafsvík

Einar Rúnar Ísfjörð tók við sem stöðvarstjóri N1 í Ólafsvík fyrir rúmu ári síðan en hann kom þá frá Staðarskála í Hrútafirði þar sem hann hafði unnið í rúm sjö ár í sama starfi. Blaðamaður Skessuhorns átti leið í N1 í síðustu viku og tók smá spjall við Einar. Það eru blikur á lofti hjá…Lesa meira

true

Frábær árangur UMFG í Neskaupstað

Helgina 12. til 14. maí lögðu kátir krakkar land undir fót og fóru akandi alla leið í Neskaupstað frá Grundarfirði. Eftir rúmlega ellefu tíma rútuferð var komið til Norðfjarðar á föstudagskvöldi. Daginn eftir hófst seinni hluti Íslandsmótsins í blaki 10 til 14 ára. Alls voru 14 krakkar, tveir fararstjórar og einn þjálfari ásamt bílstjóra sem…Lesa meira

true

E10 bensín hentar ekki fyrir alla bíla eða eldri vélar

Undir lok síðasta árs gerði olíufélagið Skeljungur samning við Equinor um innflutning á eldsneyti sem inniheldur 10% blöndu af Ethanóli á móti 90% hlutfalli jarðefnaeldsneytis eða svokallað E10 eldsneyti. Fyrirtækið reið þannig á vaðið en nú hafa bæði hin olíufélögin byrjað að selja slíkt bensín. Einungis á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri verður áfram hægt að…Lesa meira

true

Leitar að fjárfestum fyrir jurtamjólkurverksmiðju

Skagakonan Karen Emilía Jónsdóttir, betur þekkt sem Kaja, á og rekur Matarbúr Kaju eða Kaja organic ehf. Fyrirtækið stofnaði hún árið 2013 og hóf þá að selja lífræna matvöru. Smám saman hefur reksturinn stækkað og hefur Kaja sjálf farið að framleiða lífrænar vörur til sölu. Árið 2018 opnaði kaffihúsið Café Kaja á Stillholti 23 á…Lesa meira

true

Byrjað að rykbinda borgfirsku sveitavegina

Rykbinding er af hálfu Vegagerðarinnar hafin á malarvegum í Borgarfirði. Fyrsti dagurinn var á mánudaginn, á svipuðum tíma og undanfarin ár. Tæki sem eru notuð í þetta verkefni eru einn veghefill og þrír vörubílar en tveir þeirra eru með vatnstanki og einn með saltdreifara. Þennan fyrsta dag rykbindingar var veðrið ekki uppá það besta. Snjókoma…Lesa meira

true

Skipulagslýsing varðandi Jaðarsbakka samþykkt

Í tengslum við viljayfirlýsingu Ísoldar fasteignafélags ehf., ÍA, KFÍA og Akraneskaupstaðar, sem undirrituð var 7. mars 2023, um uppbyggingu við Jaðarsbakka er nú verið að vinna skipulagslýsingu fyrir svæðið. Skipulagslýsing þarf skv. lögum að innihalda vissar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri breytingu á skipulagi og er tilgangur lýsingarinnar að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu…Lesa meira

true

Netárásir á opinbera vefi vegna leiðtogafundar

Borið hefur á því í morgun að opinberir vefir liggi niðri. Vefur Stjórnarráðsins lá til að mynda niðri um tíma áðan en virðist kominn í gagnið núna. Þá liggur heimasíða Alþingis niðri og símasambands- og netlaust er með öllu á þinginu. Fram kemur á vef RÚV að Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, staðfestir að…Lesa meira

true

Baldur hafði viðkomu á Akranesi

Sjómælingabáturinn Baldur hafði viðkomu í Akraneshöfn í gær, áður en hann hélt af stað til verkefna á níunda tímanum í morgun. Báturinn nýtist Landhelgisgæslunni til sjómælinga, eftirlits, löggæslu, æfinga og margvíslegra annarra verkefna, enda fjölnota. Vafalítið er hann nýttur þessa dagana til eftirlits á sjó vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem hefst í dag í Reykjavík. Baldur…Lesa meira