Hluti af því úrvali sem til sölu er í versluninni að Stillholti 23.

Leitar að fjárfestum fyrir jurtamjólkurverksmiðju

Skagakonan Karen Emilía Jónsdóttir, betur þekkt sem Kaja, á og rekur Matarbúr Kaju eða Kaja organic ehf. Fyrirtækið stofnaði hún árið 2013 og hóf þá að selja lífræna matvöru. Smám saman hefur reksturinn stækkað og hefur Kaja sjálf farið að framleiða lífrænar vörur til sölu. Árið 2018 opnaði kaffihúsið Café Kaja á Stillholti 23 á Akranesi en það hafði tvö ár þar á undan verið til húsa á Kirkjubraut á Akranesi. Á Stillholti er um 60 fermetra framleiðslurými og framleiða Kaja og hennar starfsfólk þar um 30 vörutegundir sem fást í helstu verslunum landsins, þ.á.m. í Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaupum, Melabúðinni og Heimkaupum. Á Kaffihúsinu er einnig lítil verslun þar sem hægt er að kaupa Kaju vörur ásamt öðrum gourmet vörum.

Leitar að fjárfestum fyrir jurtamjólkurverksmiðju - Skessuhorn