
Hvað þýðir samræmd móttaka flóttafólks á Akranesi?
Þann 16. mars í vetur undirritaði Akraneskaupstaður samning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks. Segir í samningnum að markmið samræmdrar móttöku sé að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að. Samkvæmt samningnum, sem gildir til tveggja ára, skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að veita að lámarki 40 en að hámarki 80 einstaklingum þjónustu á grundvelli samningsins á samningstímanum. Akraneskaupstaður er tíunda sveitarfélagið til að undirrita samning sem þennan við ráðuneytið, en hvað þýðir þessi samningur fyrir Akranes?