Fréttir

true

Frábær árangur UMFG í Neskaupstað

Helgina 12. til 14. maí lögðu kátir krakkar land undir fót og fóru akandi alla leið í Neskaupstað frá Grundarfirði. Eftir rúmlega ellefu tíma rútuferð var komið til Norðfjarðar á föstudagskvöldi. Daginn eftir hófst seinni hluti Íslandsmótsins í blaki 10 til 14 ára. Alls voru 14 krakkar, tveir fararstjórar og einn þjálfari ásamt bílstjóra sem…Lesa meira

true

E10 bensín hentar ekki fyrir alla bíla eða eldri vélar

Undir lok síðasta árs gerði olíufélagið Skeljungur samning við Equinor um innflutning á eldsneyti sem inniheldur 10% blöndu af Ethanóli á móti 90% hlutfalli jarðefnaeldsneytis eða svokallað E10 eldsneyti. Fyrirtækið reið þannig á vaðið en nú hafa bæði hin olíufélögin byrjað að selja slíkt bensín. Einungis á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri verður áfram hægt að…Lesa meira

true

Leitar að fjárfestum fyrir jurtamjólkurverksmiðju

Skagakonan Karen Emilía Jónsdóttir, betur þekkt sem Kaja, á og rekur Matarbúr Kaju eða Kaja organic ehf. Fyrirtækið stofnaði hún árið 2013 og hóf þá að selja lífræna matvöru. Smám saman hefur reksturinn stækkað og hefur Kaja sjálf farið að framleiða lífrænar vörur til sölu. Árið 2018 opnaði kaffihúsið Café Kaja á Stillholti 23 á…Lesa meira

true

Byrjað að rykbinda borgfirsku sveitavegina

Rykbinding er af hálfu Vegagerðarinnar hafin á malarvegum í Borgarfirði. Fyrsti dagurinn var á mánudaginn, á svipuðum tíma og undanfarin ár. Tæki sem eru notuð í þetta verkefni eru einn veghefill og þrír vörubílar en tveir þeirra eru með vatnstanki og einn með saltdreifara. Þennan fyrsta dag rykbindingar var veðrið ekki uppá það besta. Snjókoma…Lesa meira

true

Skipulagslýsing varðandi Jaðarsbakka samþykkt

Í tengslum við viljayfirlýsingu Ísoldar fasteignafélags ehf., ÍA, KFÍA og Akraneskaupstaðar, sem undirrituð var 7. mars 2023, um uppbyggingu við Jaðarsbakka er nú verið að vinna skipulagslýsingu fyrir svæðið. Skipulagslýsing þarf skv. lögum að innihalda vissar upplýsingar sem tengjast fyrirhugaðri breytingu á skipulagi og er tilgangur lýsingarinnar að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu…Lesa meira

true

Netárásir á opinbera vefi vegna leiðtogafundar

Borið hefur á því í morgun að opinberir vefir liggi niðri. Vefur Stjórnarráðsins lá til að mynda niðri um tíma áðan en virðist kominn í gagnið núna. Þá liggur heimasíða Alþingis niðri og símasambands- og netlaust er með öllu á þinginu. Fram kemur á vef RÚV að Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, staðfestir að…Lesa meira

true

Baldur hafði viðkomu á Akranesi

Sjómælingabáturinn Baldur hafði viðkomu í Akraneshöfn í gær, áður en hann hélt af stað til verkefna á níunda tímanum í morgun. Báturinn nýtist Landhelgisgæslunni til sjómælinga, eftirlits, löggæslu, æfinga og margvíslegra annarra verkefna, enda fjölnota. Vafalítið er hann nýttur þessa dagana til eftirlits á sjó vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem hefst í dag í Reykjavík. Baldur…Lesa meira

true

Hittust á Torrevieja

Jafnan er dágóður hópur Íslendinga sem nýtur hitans á Spánarströndum. Á meðfylgjandi mynd er hópur Borgfirðinga sem hittist óvænt einn góðan föstudag í Torrevieja á Spáni. Slegið var í hópmynd af því tilefni. Frá vinstri eru: Helga Jakobsdóttir, Hallgeir Pálmason, Jenný Johansen, Bergsveinn Símonarson, Heba Magnúsdóttir, Þóra Þorkelsdóttir, Bjarni Jarlsson, Ragnhildur Þorbjörnsdóttir, Lilja Ólafsdóttir, Guðmundur…Lesa meira

true

Kepptu með unglingalandsliðinu í sundi

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Kristján Magnússon frá Sundfélagi Akraness kepptu með unglingalandsliði Íslands á Taastrup Open í Danmörku um liðna helgi. Bæði unnu þau til bronsverðlauna í 50 metra skriðsundi á mótinu og í 50m bringusundi hafnaði Kristján í þriðja sæti og fékk bronsverðlaun. Þau voru einnig hluti af blandaðri boðsundssveit sem vann til bronsverðlauna…Lesa meira

true

Fækkar í Þjóðkirkjunni en fjölgar mest í Siðmennt

Alls voru 226.763 einstaklingar hér á landi skráðir í Þjóðkirkjuna 1. maí síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Hefur skráðum einstaklingum þar fækkað um 706 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.981 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 132 á áðurnefndu tímabili. Í þriðja sæti er Fríkirkjan í…Lesa meira