Við Fitjakirkju í Skorradal. Ljósm. úr safni/mm

Fækkar í Þjóðkirkjunni en fjölgar mest í Siðmennt

Alls voru 226.763 einstaklingar hér á landi skráðir í Þjóðkirkjuna 1. maí síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Hefur skráðum einstaklingum þar fækkað um 706 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.981 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 132 á áðurnefndu tímabili. Í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.935 skráða meðlimi og hafði þeim fækkað um 18.

Fækkar í Þjóðkirkjunni en fjölgar mest í Siðmennt - Skessuhorn