Fréttir

true

Gat á sjókví í Reyðarfirði

Matvælastofnun barst í gær tilkynning frá Löxum Fiskeldi um að gat hefði fundist á nótarpoka einnar sjókvíar Laxa við Vattarnes í Reyðarfirði. „Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit með kvíum á stöðinni og virkjaði fyrirtækið viðbragðsáætlun sína strax og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Laxa var gatið á um sjö metra dýpi og reyndist vera um…Lesa meira

true

Lífshlaupið hefst í byrjun febrúar

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til marga. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60…Lesa meira

true

Sauðfjárbændur uggandi vegna áburðarverðshækkana

Árið 2021 fluttu 24 fyrirtæki inn tæp 58 þúsund tonn af áburði og jarðvegsbætandi efnum, alls 368 tegundir. Innlendir framleiðendur eru 16 á skrá en það eru fyrirtæki sem framleiða áburð eða jarðvegsbætandi efni hér á landi. Áburðarfyrirtæki sem voru með skráða starfsemi á árinu eru því 40. Þetta kemur fram í samantekt Matvælastofnunar. Langmestur…Lesa meira

true

Viðvörunarstig appelsínugult við Breiðafjörð

Veðurstofan hefur hert viðvörunarstig vegna suðvestan hvassviðris í kvöld og fram á laugardag. Versta veðrið verður um norðvestan- og norðanvert landið. Á miðnætti í kvöld gengur í sunnan- og suðvestan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið verða yfir 40 m/s við Breiðafjörð og verður varasamt ferðaveður. Um hádegið á morgun og til kvölds færist niður í…Lesa meira

true

Öllum tilboðum hafnað í verkfræðihönnun Grundaskóla

Á fundi hjá skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar á mánudaginn voru opnuð tilboð í verkfræðihönnun Grundaskóla á Akranesi vegna fyrirhugaðra breytinga og framkvæmda við skólahúsið. Alls bárust fjögur tilboð og voru þau öll vel yfir uppfærðri kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar sem hljóðar upp á rúma 31 milljón króna. Innkomin tilboð voru frá 42,4 milljónum króna til 71,8 milljónar.…Lesa meira

true

Kæra verktakafyrirtæki fyrir brot á lögum um meðferð sprengiefnis

Íbúar sem búa bæði norðan og sunnan við Hvalfjörð hrukku ónotalega upp við sprengingu og skjálfta í kjölfarið, laust fyrir klukkan hálf sjö í gærkvöldi. Á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar mældist skjálfti upp á 0,7 stig og þar á bæ var farið að kanna hverju það sætti, enda Hvalfjörður ekki þekkt jarðskjálftasvæði. Eftir að íbúar fóru að…Lesa meira

true

Rannsókn á bruna á lokastigi

Rannsókn Lögreglunnar á Vesturlandi á bruna sem varð í Brekkubæjarskóla á Akranesi að kvöldi 13. janúar síðastliðinn er nú á lokastigi. Í tilkynningu lögreglu kemur fram að málið teljist upplýst og verði unnið í samvinnu með barnavernd. Við rannsókn málsins naut lögreglan á Vesturlandi liðsinnis tæknideildar LRH.Lesa meira

true

Brislingur er ný fisktegund við Ísland

Í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins er grein um fisktegundina brisling sem hefur fundist í vaxandi mæli við Íslandsstrendur frá 2017. Í greininni er getið um alla þekkta fundarstaði brislings við landið hingað til. Brislingur er fremur strandlægur fiskur og hefur nú fundist víða við sunnan- og vestanvert landið, flestir út af Rangársandi og Landeyjasandi, í Faxaflóa,…Lesa meira

true

Alls yfir 300 í sóttkví og 200 í einangrun á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi birti í morgun nýjustu tölur yfir fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun á Vesturlandi og eru nú 330 í sóttkví og 201 í einangrun á Vesturlandi. Alls eru nú 226 í sóttkví og 92 í einangrun á Akranesi, 51 í sóttkví og 65 í einangrun í Borgarnesi og í Stykkishólmi eru 26…Lesa meira

true

Fimm smitaðir fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld

Það bárust ekki góð tíðindi úr herbúðum íslenska landsliðsins í handbolta í gærkvöldi þegar í ljós kom að þrír leikmenn liðsins voru komnir með kóvid. Þetta eru þeir Björgvin Páll Gústavsson, Elvar Örn Jónsson og Ólafur Guðmundsson. Þeir fengu allir jákvætt úr PCR prófi og eru komnir í einangrun en eru allir með mjög lítil…Lesa meira