
Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að vegna kuldans síðustu daga hafa Veitur ohf. ákveðið að skerða heitt vatn til sundlauga á Akranesi. Þetta þýðir að Jaðarsbakkalaug, Bjarnalaug og Guðlaug verða lokaðar þar til annað verður ákveðið. Ekki er vitað hversu lengi lokunin mun standa yfir en upplýst verður um það um leið og hægt er.…Lesa meira







