
Skaginn syngur inn jólin í dag líkt og aðra daga í desember. Hér má sjá hvað leynist í glugga dagsins.Lesa meira

Skaginn syngur inn jólin í dag líkt og aðra daga í desember. Hér má sjá hvað leynist í glugga dagsins.Lesa meira

Lokapunktur á haustönn Bridgefélags Borgarfjarðar er jafnan Jólasveinatvímenningur á föstudegi í aðdraganda jóla. Þá draga spilarar spil úr stokknum og mynda þannig pör. Síðastliðinn föstudag var spilað á sjö borðum. Úrslit urðu þau að Skagamaðurinn Viktor Björnsson ásamt Kristjáni Hallgrímssyni úr Borgarnesi báru sigur úr býtum með talsverðum yfirburðum, eða 62,92% skori. Í öðru sæti…Lesa meira

Arnleifur Hjörleifsson er genginn til liðs við Knattspyrnufélag ÍA og hefur skrifað undir samning sem gildir til ársins 2024. Arnleifur er vinstri bakvörður og á að baki alls 91 deildarleik með Skallagrími, Kára og Kórdrengjum og hefur skorað í þeim leikjum níu mörk. Arnleifur sem er fæddur árið 2000 er uppalinn í Ólafsvík en með…Lesa meira

Í kvöld tekur gildi gul viðvörun fyrir allt vestanvert landið vegna norðaustan hvassviðris eða storms. Gildir viðvörunin fram á þriðjudagsmorgun. Búast má við því að akstursskilyrði verði afleit þar sem töluverður snjór liggur yfir landinu og því er norðan bylur í kortunum. Við Faxaflóa og Breiðafjörð er spáð norðaustan 15-23 m/s, hvassast verður á Snæfellsnesi,…Lesa meira

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er nú ófært yfir Bröttubrekku, í Álftafirði, á Skógarströnd og Útnesvegi. Búið er að opna veginn yfir Fróðárheiði en þar er snjóþekja. Unnið er að mokstri víða á Snæfellsnesi. Þæfingur og jafnvel þungfært er víða í uppsveitum Borgarfjarðar en snjóþekja eða hálka er á öðrum leiðum á Vesturlandi. Vegagerðin bendir á að…Lesa meira

Svo virðist sem mest hafi snjóað á Suðurnesjunum í lægðinni sem gekk yfir landið frá föstudegi og fram á laugardag með tilheyrandi truflun á samgöngum. Mjög miklar annir hafa verið hjá björgunarsveitum suður með sjó og nú í morgun var kallaður út viðbótar mannskapur m.a. frá Björgunarfélagi Akraness til aðstoðar við að leysa úr fjölda…Lesa meira

Líkt og víða á landinu hefur snjóað talsvert í Ólafsvík frá því á föstudaginn, samhliða vindi og skafrenningi. Börnin í Ólafsvík hafa ekki látið blásturinn á sig fá og héldu með sinn snjósleða í Sjómannagarðinn til þess að renna sér. Þetta er bara gaman sögðu þau þegar fréttaritari rakst á þau.Lesa meira

Skagakonan Ásdís Líndal hlaut nú í nóvember viðurkenningu fyrir íþróttanudd á verðlaunahátíðinni Family first awards sem haldin var á Titanic hótelinu í Belfast á Norður-Írlandi. Ásdís var ásamt fimm kírópraktorum tilnefnd í flokki þerapista. Alls voru viðurkenningar veittar í tólf flokkum en hátíðin sneri að því að verðlauna fólk í framlínustörfum (e. keyworkers) í heilbrigðiskerfinu…Lesa meira

Fjórði sunnudagur í aðventu og hér er átjándi gluggi jóladagatalsins:Lesa meira

Nú er vetrarfærð á vegum víðs vegar á Vesturlandi. Gul viðvörun er í gildi í landshlutanum til klukkan 15 í dag. Hringvegurinn um Kjalarnes er lokaður og sama á við um sunnanverðan Hvalfjörð. Hálka, éljagangur og þæfingsfærð er auk þess víða. Ófært er í Álftafirði á Snæfellsnesi, ófært er á milli Fróðárheiði og Hellna og…Lesa meira