Fréttir

true

Minni vanskil heimila og fyrirtækja

Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum þremur eru nú lægri en fyrir heimsfaraldurinn. Þetta kemur fram í tölum Seðlabanka Íslands. Þannig voru 0,7% lána heimila í vanskilum í september á þessu árið samanborið við 0,9% um áramót og í september í fyrra. Um 2,4% lána fyrirtækja voru í vanskilum í lok september á þessu…Lesa meira

true

LED væða götuljós í Stykkishólmi

Undanfarnar vikur hefur götuljósum í Stykkishólmi verið skipt út. Ljósin eru nú flest komin með LED perur og eyða því 40% minna rafmagni en forverar þeirra. Rekstrarkostnaður á götulýsingu Stykkishólmsbæjar hefur því lækkað sem því nemur. LED staurarnir veita einnig betri lýsingu. Verkefnið hefur staðið yfir síðan árið 2019 þegar sveitarfélagið tók við bæjarlýsingunni af…Lesa meira

true

Opinber heimsókn forsetahjónanna á Akranes

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid eiginkona hans koma í opinbera heimsókn á Akranes á morgun, fimmtudaginn 15. desember. Heimsóknin er í tilefni af 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar á þessu ári. Þétt dagskrá liggur fyrir allan daginn en þau munu heimsækja fjölmarga staði. Síðdegis er Akurnesingum öllum boðið að koma í Breið…Lesa meira

true

Fimleikagleði hjá Fimleikafélagi Akraness

Um síðustu helgi hélt Fimleikafélag Akraness Fim-leikana 2022 í fyrsta skipti en um var að ræða innanfélagsgleði þar sem allir flokkar fimleikafélags ÍA fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína. Á fimmtudaginn var jólasýning hjá grunnhópum og eftir sýninguna var opin æfing þar sem foreldrar fengu að taka þátt. Á föstudeginum var parkour partý…Lesa meira

true

Lokaverkefni LbhÍ nemenda kynnt í Grundarfirði

Í ágúst síðastliðnum komu nemendur umhverfisskipulags við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í heimsókn til Grundarfjarðar til að kynna sér deiliskipulag bæjarins. Nemendurnir nýttu svo upplýsingarnar til að vinna lokaverkefni sín við skólann en þá var verkefnið að hanna nýja ásýnd bæjarins fyrir framtíðina. Miðvikudaginn 7. desember síðastliðinn komu svo nemendur og kennarar til Grundarfjarðar og kynntu…Lesa meira

true

Diddú og drengirnir í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 18. desember nk. kl. 20.00 mun Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona og sex manna blásarasveit flytja hugljúfa og glæsilega aðventu- og jólatónlist í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Gestir þeirra verða Margrét Bóasdóttir sópran og Kór Saurbæjarprestakalls með stjórnanda sínum Zsuzsönnu Budai. Sr. Þráinn Haraldsson flytur kvöldbæn í lok tónleika og tónleikagestir syngja jólasálm með flytjendum. „Verið hjartanlega…Lesa meira

true

Jólagleði á Hvanneyri

Síðastliðinn sunnudag blésu Íbúasamtökin á Hvanneyri til jólagleði í þorpinu sínu. Gamla bæjartorfan var ljósum prýdd og fjölmenni sem mætti til að fanga hinn eina og sanna jólaanda. Í hlöðu Halldórsfjóss var handverk og matur úr hérað boðið til sölu. Þar söng einnig Kirkjukór Borgarness jólalög og jólasveinar komu og vöktu mikla kátínu. Utan dyra…Lesa meira

true

Skráning á Mannamót landshlutanna er til 20. desember

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldið í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá klukkan 12 til 17. Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt…Lesa meira