Fréttir

true

Kynna breytingu á aðalskipulagi í Stykkishólmi

Miðvikudaginn í næstu viku, 30. nóvember, mun sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar kynna fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms. Kynningin fer fram á Amtsbókasafninu kl. 17-18. Auk breytingar á aðalskipulagi verða kynntar tillögur að nýjum deiliskipulagsáætlunum fyrir grænan iðngarð við Kallhamra og stækkun athafnasvæðis við Hamraenda. Í auglýsingu sem birtist í Skessuhorni sem kom út í…Lesa meira

true

Samfélagsvegir kynntir fyrir íbúum í Dölum

Opinn fundur var haldinn í Árbliki í Dölum sl. mánudagskvöld þar sem Haraldur Benediktsson alþingismaður kynnti hugmynd sem hann hefur unnið að í nokkurn tíma, um Samfélagsvegi. Skessuhorn greindi frá því í október að Haraldur hefði haldið slíkan fund í Húnaþingi vestra 4. október við góðar viðtökur heimamanna þar. Haraldur imprar reyndar á því að…Lesa meira

true

Aðventudagskrá í Borgarnesi á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. nóvember nk. verður jólaandinn allsráðandi í Borgarnesi þegar upphaf aðventu gengur í garð. Dagskrá: Kl. 13:00 – 16:00 Jólasamverustund í Safnahúsi BorgarfjarðarJólakósý í Safnahúsinu – ný örsýning sem fangar jólaanda liðinna jóla með jólakortum og jólakveðjum. Jólaföndur á bókasafninu með kærleiksívafi. Notast verður við endurvinnanleg efni og geta íbúar skreytt útprentaðar jólakúlur með…Lesa meira

true

Handboltaæfingar hafnar í Snæfellsbæ

Nú í haust var byrjað að bjóða börnum og unglingum í Snæfellsbæ að æfa og stunda handbolta og fara æfingar fram í í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Tinna Ýr Gunnarsdóttir tók við sem formaður UMF Víkings/Reynis í ágúst á þessu ári. Hún segir í samtali við Skessuhorn að það sé alltaf verið að leita leiða til…Lesa meira

true

Aðventusýning á bókasafni Akraness

Skagakonan Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir sýnir ýmsar jólahannyrðir sínar í Bókasafni Akraness. Hún hefur búið í Innri-Akraneshreppi hinum forna og á Akranesi alla sína tíð, er fædd 1935, og starfaði sem hjúkrunarkona á Sjúkrahúsi Akraness og Dvalarheimilinu Höfða. Nú hefur hún sett upp sýningu á ýmsum jólahannyrðum sínum á Bókasafni Akraness, bæði hekl og útsaum af…Lesa meira

true

Varað við snörpum hviðum undir Hafnarfjalli

Veðurfræðingur varar við því að hviðurnar í NA-áttinni í dag verða hvað snarpastar undir Hafnarfjalli, á Kjalarnesi og undir Eyjafjöllum á milli kl. 10 og 14. Einnig er reiknað með snörpum vindhviðum í Öræfum í dag til kl. 15.Lesa meira

true

Klakkur hélt kynningarkvöld

Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði hélt kynningarkvöld fyrir áhugasama í húsnæði sveitarinnar síðastliðið mánudagskvöld. Þar gafst fólki tækifæri til að skoða tæki og tól sem sveitin hefur til umráða ásamt því að hægt var að skrá sig í björgunarsveitina og taka þátt í æfingum og verkefnum í framtíðinni. Mikil þörf hefur verið á nýliðun í sveitinni…Lesa meira

true

Læknaskortur tekur á

Enginn læknir hefur verið tiltækur í Ólafsvík á að verða þriðju viku. Íbúar í Ólafsvík eru ósáttir við stöðuna en umræða um málið hefur vaknað á samfélagsmiðlum. Engin tilkynning hefur verið gefin út frá Heilbrigðisstofnun Veturlands. Ekki náðist í forstjóra HVE  við vinnslu fréttarinnar en bæjarstjóri Snæfellsbæjar hafði þetta um málið að segja: ,,Ég hef…Lesa meira

true

Skortir samræmt eftirlit og utanumhald yfir kostnað við úrgang

Valgeir Páll Björnsson frá Sorpu flutti erindi á ráðstefnu um úrgangsmál sem fram fór á Hótel Hamri í Borgarnesi í síðustu viku. Þá komu fulltrúar sveitarfélaganna á Vestulandi saman til að kynna sér nýjar leiðir og áskoranir í sorpmálum. Valgeir Páll segir fjármál er varða sorphirðu vera í óvissu en á landsvísu skortir betri yfirsýn…Lesa meira

true

Sundmenn SA stóðu sig með prýði

178 sundmenn frá 15 félögum tóku þátt á Íslandsmeistaramóti í 25 metra laug sem fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Mótið var með nýju sniði í ár þar sem unglingameistaramót fór fram fyrir hádegi og Íslandsmeistaramótið seinnipartinn. Tíu sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í mótinu: Alex Benjamín Bjarnason, Ásdís Erlingsdóttir, Einar Margeir…Lesa meira