Fréttir

true

Geitfjársetur hélt tíu ára afmælishátíð

Að Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði búa hjónin Jóhanna Þorvaldsdóttir og Þorbjörn Oddsson. Fyrir tíu árum síðan stofnuðu þau Geitfjársetur að Háafelli en þau hófu að bjarga íslenska geitastofninum um síðustu aldamót og hefur starfsemin vaxið og dafnað síðan. Yfir sumartímann er setrið opið þar sem heimsækja má geiturnar og kynnast afurðum þeirra sem seldar…Lesa meira

true

Banaslys við Akranes

Laust fyrir klukkan 21 í gær voru viðbragðsaðilar; lögregla auk björgunarsveita á Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði kallaðar út með hæsta forgangi til leitar á sjó. Sjósundsmanns var þá saknað úti fyrir Langasandi á Akranesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók einnig þátt í leitinni. Allir tiltækir björgunarbátar og sæþotur voru settar á flot og leitað fram eftir kvöldi.…Lesa meira

true

Vegglistaverk vekja athygli á Akranesi

Eins og margir íbúar Akraness hafa eflaust tekið eftir, eða þá heyrt af, hafa tvö stór vegglistaverk verið í vinnslu á síðustu vikum og eru nú tilbúin. Annað þeirra er staðsett á suðurgafli Hafbjargarhússins á Breiðinni og er verk eftir listakonuna Tinnu Royal sem sýnir stórþorska sem synda í röðum hver í sína áttina. Það…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð var þjóðleg og vel sótt

Síðastliðinn laugardag héldu Hvanneyringar þorpshátíð sína. Oftast hefur hátíðin farið fram í júlímánuði, en nú var ákveðið að halda hana viku af ágúst þegar flestir hafa lokið sumarfríum sínum. Það fyrirkomulag voru menn almennt ánægðir með. Dagskrá hátíðarinnar var á margan hátt hefðbundin, en lögð var sérstök áhersla á þjóðlegan leik og skemmtun. Veður var…Lesa meira

true

Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum – Úrslit og myndir

Dagana 3.-6. ágúst fór Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum fram á félagssvæði Borgfirðings í Borgarnesi. Mótsnefnd segir flotta hesta sem og knapa hafa komið fram á mótinu en sjá mátti glæsilegar sýningar hjá ungum og efnilegum knöpum. Félagar úr Hestamannafélaginu Borgfirðingi unnu hörðum höndum að því að gera mótsvæðið klárt og standa svo vaktina…Lesa meira

true

Víðtæk leit við strönd Akraness

Laust fyrir klukkan 21 í kvöld voru björgunarsveitir á Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði kallaðar út til leitar í sjó út af Langasandi á Akranesi. Sjósundsmanns er saknað. Þá hefur þyrla Landhelgisgæslunnar einnig tekið þátt í leitinni. Leit mun halda áfram í kvöld og fram á nóttina ef þurfa þykir, samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Vestan vindur er…Lesa meira

true

Gosstöðvarnar áfram lokaðar í dag

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tók þá ákvörðun í morgun að áfram yrði lokað inn á gosstöðvarnar á Reykjanesskaga í dag. Veðurútlit fyrir svæðið er ekki gott í dag, sunnan- og suðvestankaldi eða strekkingur með þokusúld og slæmu skyggni. Einnig er hætta á grjóthruni úr hlíðum og því er varasamt að ferðast um svæðið.Lesa meira

true

Skagakonur með góðan sigur

KH og ÍA mættust í 2. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Valsvellinum við Hlíðarenda. Guðlaug Ásgeirsdóttir kom KH yfir strax á fimmtu mínútu en fyrirliðinn Bryndís Rún Þórólfsdóttir jafnaði metin fyrir ÍA rétt fyrir hálfleik. Markamaskínan Samira Suleman skoraði síðan tvö mörk fyrir ÍA í seinni hálfleik og tryggði…Lesa meira

true

Ekki verði gripið inn í fyrirkomulag strandveiða fyrir þetta tímabil

Strandveiðar voru stöðvaðar 21. júlí síðastliðinn þegar kvótinn kláraðist. Þá var meira en mánuður eftir af veiðitímabilinu. Matvælaráðherra hefur boðað frumvarp um breytingu á kvótakerfinu þar sem kvótanum yrði deilt milli landssvæða en strandveiðin á Norðurlandi var til dæmis nýlega komin í gang þegar kvótinn var uppurinn. Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, fór…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu gegn Val – Sjötti tapleikur liðsins í röð

Gömlu stórveldin ÍA og Valur mættust í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og unnu Valsarar nauman sigur, 1-2. Valur fékk fyrsta færi leiksins þegar Aron Jóhannsson sendi boltann inn fyrir vörn Skagamanna þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson ætlaði að lauma boltanum í fjærhornið en Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA varði ansi vel. Á…Lesa meira