Fréttir

true

Kynningarfundur vegna væntanlegra framkvæmda við Nesveg

Klukkan 17 í dag hefur Stykkishólmsbær auglýst kynningarfund meðal íbúa í nágrenni fyrirhugaðra framkvæmda Asco Harvester við Nesveg 22A. Fundurinn verður haldinn á Amtsbókasafninu. Til hans er boðað með dreifibréfi til íbúa. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum afgreiðslu skipulagsnefndar um væntanlega þangþurrkunarverksmiðju. Jafnframt var samþykkt að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhöfum í næsta nágrenni…Lesa meira

true

Páll Guðmundur ráðinn til ÍA

Páll Guðmundur Ásgeirsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri Knattspyrnufélags ÍA og hóf hann störf á skrifstofu félagsins í gær. Páll hefur starfað við ferðaþjónustu undanfarin ár, síðast sem sölu- og markaðsstjóri hjá Laugarfelli á Fljótsdalsheiði. Um leið lætur Hlini Baldursson af störfum hjá félaginu en hann hefur ákveðið að leita á ný mið og hafið störf…Lesa meira

true

Drífa Snædal segir af sér formennsku í ASÍ

Segir átök innan ASÍ hafa dregið úr vinnugleði og baráttuanda „Ég hef ákveðið að segja af mér embætti forseta Alþýðusambands Íslands og þeim trúnaðarstöðum sem ég hef gegnt sem forseti,“ segir í yfirlýsingu sem Drífa Snædal sendi frá sér í morgun. „Fyrir því eru nokkrar ástæður. Þing ASÍ er í byrjun október og ég þurfti…Lesa meira

true

Geitfjársetur hélt tíu ára afmælishátíð

Að Háafelli í Hvítársíðu í Borgarfirði búa hjónin Jóhanna Þorvaldsdóttir og Þorbjörn Oddsson. Fyrir tíu árum síðan stofnuðu þau Geitfjársetur að Háafelli en þau hófu að bjarga íslenska geitastofninum um síðustu aldamót og hefur starfsemin vaxið og dafnað síðan. Yfir sumartímann er setrið opið þar sem heimsækja má geiturnar og kynnast afurðum þeirra sem seldar…Lesa meira

true

Banaslys við Akranes

Laust fyrir klukkan 21 í gær voru viðbragðsaðilar; lögregla auk björgunarsveita á Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði kallaðar út með hæsta forgangi til leitar á sjó. Sjósundsmanns var þá saknað úti fyrir Langasandi á Akranesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók einnig þátt í leitinni. Allir tiltækir björgunarbátar og sæþotur voru settar á flot og leitað fram eftir kvöldi.…Lesa meira

true

Vegglistaverk vekja athygli á Akranesi

Eins og margir íbúar Akraness hafa eflaust tekið eftir, eða þá heyrt af, hafa tvö stór vegglistaverk verið í vinnslu á síðustu vikum og eru nú tilbúin. Annað þeirra er staðsett á suðurgafli Hafbjargarhússins á Breiðinni og er verk eftir listakonuna Tinnu Royal sem sýnir stórþorska sem synda í röðum hver í sína áttina. Það…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð var þjóðleg og vel sótt

Síðastliðinn laugardag héldu Hvanneyringar þorpshátíð sína. Oftast hefur hátíðin farið fram í júlímánuði, en nú var ákveðið að halda hana viku af ágúst þegar flestir hafa lokið sumarfríum sínum. Það fyrirkomulag voru menn almennt ánægðir með. Dagskrá hátíðarinnar var á margan hátt hefðbundin, en lögð var sérstök áhersla á þjóðlegan leik og skemmtun. Veður var…Lesa meira

true

Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum – Úrslit og myndir

Dagana 3.-6. ágúst fór Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum fram á félagssvæði Borgfirðings í Borgarnesi. Mótsnefnd segir flotta hesta sem og knapa hafa komið fram á mótinu en sjá mátti glæsilegar sýningar hjá ungum og efnilegum knöpum. Félagar úr Hestamannafélaginu Borgfirðingi unnu hörðum höndum að því að gera mótsvæðið klárt og standa svo vaktina…Lesa meira

true

Víðtæk leit við strönd Akraness

Laust fyrir klukkan 21 í kvöld voru björgunarsveitir á Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði kallaðar út til leitar í sjó út af Langasandi á Akranesi. Sjósundsmanns er saknað. Þá hefur þyrla Landhelgisgæslunnar einnig tekið þátt í leitinni. Leit mun halda áfram í kvöld og fram á nóttina ef þurfa þykir, samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Vestan vindur er…Lesa meira

true

Gosstöðvarnar áfram lokaðar í dag

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tók þá ákvörðun í morgun að áfram yrði lokað inn á gosstöðvarnar á Reykjanesskaga í dag. Veðurútlit fyrir svæðið er ekki gott í dag, sunnan- og suðvestankaldi eða strekkingur með þokusúld og slæmu skyggni. Einnig er hætta á grjóthruni úr hlíðum og því er varasamt að ferðast um svæðið.Lesa meira