Fréttir

true

Slys á Steingrímsfjarðarheiði

Björgunarsveitir af vestanverðu landinu voru klukkan 14:18 í dag kallaðar til aðstoðar félögum sínum á Ströndum eftir slys þar sem maður hafði hrasað og fallið um þrjátíu metra niður gil við foss í Norðdal inn af Steingrímsfirði, skammt frá veginum þar sem ekið er upp á Steingrímsfjarðarheiði. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, en samkvæmt upplýsingum…Lesa meira

true

Perla Sól yngst Íslandsmeistara í golfi

Íslandsmótinu í golfi lauk í Vestmanneyjum í dag en mótið hófst á fimmtudaginn. Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR og Kristján Þór Einarsson GM eru Íslandsmeistarar í golfi 2022. Þetta er í fyrsta sinn sem hin 15 ára Perla Sól fagnar þessum titli og í annað sinn sem Kristján Þór sigrar á Íslandsmótinu, en hann sigraði árið…Lesa meira

true

Dróttskátar komu saman á Hömrum

Á annað hundrað dróttskátar af landinu sameinuðust um helgina í útilífsmiðstöðinni á Hömrum við Akureyri til að byggja upp nýja siðmenningu, eins og það er orðað í tilkynningu frá Landssambandi íslenskra skáta. Dróttskátarnir eru ungmenni í 8.-10. bekk grunnskóla. Skátarnir skiptust niður í þorp þar sem hvert þorp þurfti að vinna sér inn gjaldeyri til…Lesa meira

true

Stærsti skjálftinn frá því gosið hófst

Jarðskjálfti sem átti upptök sín vestan við Kleifarvatn og var að stærðinni 4,1 varð kl. 11:52 í dag. Fannst hann vel á höfuðborgarsvæðinu og alla leið í Borgarfjörð samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Þetta er jafnframt stærsti skjálftinn síðan gosið í Meradölum hófst síðastliðinn miðvikudag. Um er að ræða svokallaðan gikkskjálfta sem talinn er skýrast af því…Lesa meira

true

Ferðaþjónustufyrirtæki fari að settum reglum

Ferðamálastofa vill að gefnu tilefni ítreka við ferðaþjónustufyrirtæki sem bjóða upp á ferðir á gossvæðið við Fagradalsfjall að fara að öllu eftir fyrirmælum og leiðbeiningum lögreglu og björgunarsveita á staðnum. „Mikilvægt er að gæta í öllu öryggis ferðamanna og það er helst tryggt með því að farið sé eftir þeim reglum sem settar eru um…Lesa meira

true

Breytingar fyrirhugaðar á starfsemi Safnahússins í Borgarnesi

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur að undanförnu unnið að mótun tillagna um framtíðarfyrirkomulag fyrir Safnahús Borgarfjarðar til næstu ára. Í húsinu eru fimm söfn og fólst verkefnið í að skilgreina hlutverk og framtíðarsýn fyrir þau, áherslur, meginmarkmið og nauðsynlegar aðgerðir til að ná þeim fram. Niðurstaðan er að auka þurfi fjölbreytni í safnastarfinu og nýta betur söfnin…Lesa meira

true

Pósthlaup um fornar slóðir milli Hrútafjarðar og Dala

Á morgun, 6. ágúst mun Pósthlaupið fara fram fyrsta sinn. Pósthlaupið á grunnar rætur sem rekja má til starfsmanna Íslandspósts en hugmyndin kom upp í vetur meðal starfsmannahópsins um að hlaupa gamlar landpóstaleiðir. Úr varð að hlaupið var skipulagt og er opið öllum langhlaupurum sem þora og vilja. Leiðin liggur frá Staðarskála í Hrútafirði, um…Lesa meira

true

Margir að flýta sér

Talvert var um hraðakstur í vikunni um og yfir verslunarmannahelgina. Seinni part föstudags var ökumaður tekinn á 136 kílómetra hraða á móts við Hafursfell á Snæfellsnesi og fékk yfir hundrað þúsund krónur í sekt sem hann greiddi á staðnum en um var að ræða erlendan ferðamann. Sama dag var annar erlendur ferðamaður tekinn á 127…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð haldin hátíðleg á morgun

Á morgun,  laugardaginn 6. ágúst, fer hin árlega Hvanneyrarhátíð fram.  Á hátíðinni sem hefst klukkan 13 verður ýmislegt á dagskrá, m.a. fjölbreytt afþreying fyrir börn, keppni í dráttarvélarakstri, boðið verður upp á fjósaferðir og fleira skemmtilegt. Kaffisala verður á staðnum á vegum Kvenfélagsins og opið verður í húsakynnum Landbúnaðarsafnsins. Fergusonfélagið kemur svo einnig í heimsókn…Lesa meira

true

Gasmengun gæti orðið á Vesturlandi í dag

Hlutfall brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti á Vesturlandi getur hækkað og loftgæði versnað vegna eldgossins í Merardölum. Á vefsíðu Veðurstofunnar er gasdreifingarspá þar sem hægt er að sjá hvernig gasið dreifir sér á hverjum klukkutíma og áhrifasvæði gass á næstu sex klukkutímum og á næstu 24 klukkutímum. Þar sést að í dag mun gasmengun leggja yfir Akranes,…Lesa meira