Fréttir

true

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi er í dag

Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi heldur prófkjör sitt í dag, laugardaginn 3. september klukkan 11:00 til 19:00. Kosið er á 14 stöðum í kjördæminu, þar af á sex stöðum á Vesturlandi; Akranesi, Borgarnesi, Hvanneyri, Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi. Sjálfstæðisflokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu, þá Einar Kristinn Guðfinnsson forseta Alþingis og Harald Benediktsson. Einar Kristinn gefur ekki kost á…Lesa meira

true

Valgerður Janusdóttir ráðin sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs

Bæjarstjórn Akraness samþykkti einróma á fundi sínum fimmtudaginn 1. september síðastliðinn að ráða Valgerði Janusdóttur í stöðu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Valgerður er kennari að mennt, með B.Ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands, BA gráðu í sérkennslufræðum frá sama skóla og diplóma í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu…Lesa meira

true

Víkingur Ó. hefur leik í úrslitakeppninni á morgun

Fyrri leikur Víkings Ó. og Grindavíkur í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu fer fram á morgun, laugardaginn 3. september. Leikurinn fer fram á Ólafsvíkurvelli og hefst kl. 14:00. Víkingur hafnaði sem kunnugt er í þriðja sæti A riðils en Grindvíkingar í fyrsta sæti B riðils. Í úrslitakeppninni leika átta lið um tvö laus sæti…Lesa meira

true

Fjölbreytt starf í Tónlistarskóla Snæfellsbæjar

Tónlistarskóli Snæfellsbæjar er með þrjár starfsstöðvar; í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli. Kennsla hófst að nýju eftir sumarfrí síðastliðinn mánudag. Alls starfa fjórir kennarar við skólann, að meðtaldri Valentinu Kay skólastjóra. „Starfsemin fer vel af stað í ár. Kennararnir komu allir til vinnu að fullum krafti með margar nýjar hugmyndir fyrir veturinn,“ segir hún.…Lesa meira

true

Lög gegn ofur-bónusgreiðslum í gömlu bönkunum

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga sem takmarkar bónusgreiðslur eignarhaldsfélaga gömlu bankanna. Lagt er til að umrædd félög falli undir ákvæði laga um fjármálafyrirtæki en samkvæmt lögunum eru fjárhæðir bónusgreiðslna takmarkaðar við 25% af árslaunum starfsmanna. „Engin rök standa til þess að undanskilja umrædd félög þeim reglum sem gilda um banka…Lesa meira

true

Tvennir stórtónleikar á skólaárinu hjá Tónlistarskóla Grundarfjarðar

Tónlistarskóli Grundarfjarðar hefst næstkomandi mánudag, 5. september. Nemendafjöldinn í ár er svipaður og undanfarin ár eða um 65 nemendur. „Nemendafjöldinn er mjög svipaður og í fyrra. Það verða sex kennarar sem sjá til þess að nemendur fái góða kennslu. Þær breytingar urðu í kennaraliðinu að tveir fóru í leyfi og hafa því aðrir verið ráðnir…Lesa meira

true

Jacek spilar á minningartónleikum í Borgarneskirkju

Sunnudaginn 4. september næstkomandi kl. 17:00 verða tónleikar í Borgarneskirkju með píanóleikaranum Jacek Tosik-Warszawiak. Tónleikana heldur hann til minningar um vin sinn Magnús Valsson sem lést fyrr á þessu ári. Jacek flytur verk eftir Chopin og einnig munu hjónin Theodóra Þorsteinsdóttir og Olgeir Helgi Ragnarsson syngja nokkur íslensk og erlend lög með honum á tónleikunum.…Lesa meira

true

Heilbrigðisnefnd kallar eftir skýringum um mengunarmál

Skessuhorn sagði frá því fyrr á árinu að Umhverfisstofnun (UST) hefði gert tugi athugasemda við starfsemi tveggja fyrirtækja á Grundartanga og beitt dagssektum vegna mengunar og að ekki hafi verið farið eftir ákvæðum í starfsleyfum. Fyrirtækin sem um ræðir eru GMR og Kratus, sem starfa bæði á sviði málmendurvinnslu. Heilbrigðisnefnd Vesturlands ræddi starfsemi þessara fyrirtækja…Lesa meira

true

Nýnemar innvígðir á sandi

Nýnemadagur fór fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands í síðustu viku. Það var nemendafélags skólans sem stóð fyrir ýmiskonar afþreyingu, leikjum og hópefli fyrir þá sem nú hefja skólagöngu í FVA. Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Starfar sem réttindagæslumaður fatlaðra á Vesturlandi og Vestfjörðum

Fyrir fimm árum hóf Jón Þorsteinn Sigurðsson störf í nýstofnuðu embætti réttindagæslumanns fatlaðra á Vesturlandi og Vestfjörðum. Jón starfar um þessar mundir einnig sem réttindagæslumaður fatlaðra á Austurlandi en hann tók tímabundið við því starfi í fyrra. Jón þekkir vel til málefna fatlaðra því auk þess að hafa starfað sem réttindagæslumaður fatlaðra í fimm ár hefur…Lesa meira