Fréttir

true

Á 132 kílómetra hraða við Galtarholt

Ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Hvalfjarðarvegi við Galtarholt á annan í páskum. Reyndist hann hafa ekið á 132 kílómetra hraða. Sektin fyrir hraðaksturinn reyndist vera 120 þúsund krónur.Lesa meira

true

Sótti innblástur í pönkið og Kendall Jenner

Fermingarathafnir fóru fram víða á landinu á pálmasunnudegi og um liðna páska, þrátt fyrir hertar sóttvarnarreglur sem skellt var á þjóðina 25. mars. Brugðu kirkjur á það ráð að ferma börnin í litlum hollum svo ekki kæmi til þess að fresta þyrfti athöfnum eins og á síðasta ári. Ásdís Lind Vigfúsdóttir fermdist í fyrra holli…Lesa meira

true

Dino Hodzic genginn í raðir ÍA manna

Markvörðurinn Dino Hodzic er genginn til lið við ÍA frá Kára. Dino er 25 ára gamall Króati sem gekk upphaflega til liðs við ÍA sumarið 2019 en skipti yfir til Kára fyrir síðasta tímabil. Hann hafnaði nýlega tilboði frá liði í efstu deild til þess að verða áfram hjá Kára, en hefur nú ákveðið að…Lesa meira

true

Á Fellsenda er íbúum búið heimili ríkt af öryggi og hlýju

„Við höldum vel utan um heimilisfólkið okkar og reynum að búa því heimili sem veitir þeim öryggi og hlýju,“ segir Jóna Guðrún Guðmundsdóttir deildarstjóri hjúkrunar á hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dalasýslu. Á Fellsenda er hjúkrunarrými fyrir 27 íbúa. Þar búa einstaklingar sem hafa verið með langvinna geðsjúkdóma, kvíða/þunglyndi, þroskahömlun eða hafa vitsmunalega skerðingu vegna vímuefnanotkunar. „Sumir…Lesa meira

true

Setti veiðimet í mars og styttist í vertíðarmet

Netabáturinn Bárður SH kom úr róðri síðastliðinn miðvikudag, 31. mars. Um leið var ljóst að áhöfnin hafði bætt eigið Íslandsmet í lönduðum afla í einum mánuði. Landað var 1.150 tonnum í nýliðnum mars en fyrra metið átti Bárður SH einnig, eða 1.090 tonn í mars í fyrra. Áhöfnin fékk stórt páskaegg af þessu tilefni. Þá…Lesa meira

true

Valdís Þóra hættir atvinnumennsku í golfi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukona í golfi tilkynnti fyrr í dag á Facebook síðu sinni að atvinnuferli hennar í golfi væri lokið. Í yfirlýsingu sinni segir Valdís Þóra frá ástæðum þess að hún hættir en stærstu ástæðuna segir hún vera þá að líkaminn þoli ekki meira. Hún lýsir þeim meðferðum sem hún hefur gengist undir síðastliðin…Lesa meira

true

Smituðum fer smám saman fjölgandi

Í gær greindust ellefu kórónuveirusmit innanlands. Sex þeirra sem greindust voru ekki í sóttkví. Flestir þeirra sem greindust utan sóttkvíar tengjast innbyrðis. Þetta mörg smit hafa ekki greinst síðan 23. mars síðastliðinn.  Nú er nýgengi innanlands 22,6 og hefur farið smám saman hækkandi síðustu daga. 132 eru í einangrun á landinu og 127 í sóttkví.…Lesa meira

true

Sextán íbúðir á Bifröst boðnar til sölu

Fasteignafélagið Kiðá, sem er í eigu Háskólans á Bifröst ses, hefur sett á sölu 16 íbúðir sem upphaflega voru byggðar sem nemendaíbúðir við skólann, en hafa staðið lítið notaðar undanfarin ár. Íbúðirnar eru í raðhúsum við göturnar Reynihraun og Bjarkarás í hrauninu vestan við Grábrók og er stærð þeirra frá 43 til 70 fermetrar. Byggingarár…Lesa meira

true

Bensínfótur þyngist með hækkandi sól

Lögregla hefur undanfarið lagt mikla áherslu á hraðamælingar í Borgarnesi. Þó nokkrir ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur og þeir mælst á allt að 84 kílómetra hraða í götum þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar. Sektin fyrir slíkt brot er 60 þúsund krónur. Lögregla mun áfram leggja áherslu á slíkar hraðamælingar enda…Lesa meira

true

300 Þjálfun verður opnuð í nýrri aðstöðu þegar Þórólfur leyfir

Jón Einar Hjaltested, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, eigandi 300 Þjálfunar á Akranesi, er að opna nýja aðstöðu við Suðurgötu 126, í sama húsnæði og Sjúkraþjálfun Akraness. Jón Einar lauk B.sc gráðu í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík sumarið 2017 og hefur síðan þá verið í fullu starfi að þjálfa á Akranesi. Hjá 300 Þjálfun er boðið…Lesa meira