Fréttir

true

Ný Verk og Plan B í Safnahúsi

Listamenn úr héraði, ungt fólk á uppleið og handverk úr safneign er meðal þess sem sýnt verður í Hallsteinssal Safnahússins í Borgarnesi á árinu, samkvæmt nýbirtri sýningaráætlun hússins. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur safnstjóra hafa ekki verið haldnar formlegar sýningaropnanir á árinu vegna sóttvarna en fólk er hvatt til að kynna sér dagskrána á vef Safnahúss…Lesa meira

true

Standa vaktina á gosstöðvunum í dag

Frá því eldgos hófst í Geldingadölum á Reykjanesi 19. mars síðastliðinn hefur mikið mætt á björgunarsveitum við gæslu, björgun og aðstoð við fólk sem lagt hefur leið sína á svæðið. Björgunarsveitarfólk víðsvegar af landinu hefur lagt félögum sínum á Reykjanesi lið og staðið vaktir þeim til fulltingis. Meðfylgjandi mynd sýnir tíu manna hóp frá Björgunarfélagi…Lesa meira

true

Jóhanna María er formaður Berserkja

Jóhanna María Ríkharðsdóttir var á dögunum kjörin formaður Björgunarsveitarinnar Berserkja í Stykkishólmi til næstu tveggja ára. Jóhanna María tekur við af Einari Þór Strand sem var nýlega ráðinn slökkviliðsstjóri í Stykkishólmi. Auk Jóhönnu Maríu í stjórn voru kjörnir Kristján Lár Gunnarsson varaformaður, Svanborg Siggeirsdóttir gjaldkeri, Björn Ásgeir Sumarliðason ritari, Arnar Geir Ævarsson og Emil Þór…Lesa meira

true

Frákastið – nýtt tölublað Skallagríms komið út

Á vef körfuknattleiksdeildar Skallagríms í Borgarnesi er sagt frá því að út sé komið nýtt tölublað af Frákastinu, kynningarblaði félagsins. „Í blaðinu er að finna leikmannakynningar, viðtöl við þjálfara og fleira áhugavert efni um starf deildarinnar. Þetta er 11. árgangur Frákastins og er deildin því að opna nýjan áratug í útgáfusögu blaðsins,“ segir í fréttinni.…Lesa meira

true

Fyrsti báturinn sjósettur

Síðastliðinn miðvikudag var fyrsti bátur vorsins sjósettur í Borgarnesi, en það var Haraldur MB-18 sem Ágúst Haraldsson gerir út. Ekki þykir ráðlegt að hafa báta á floti yfir vetrartímann í Borgarnesi. Skjól er lítið og þá kemur reglulega ísrek frá Hvítá sem skemma myndi báta væru þeir á floti.Lesa meira

true

Mælaborð landbúnaðarins formlega opnað

Fyrr í dag opnaði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á streymisfundi; Mælaborð landbúnaðarins. Það er nú aðgengilegt á vefnum www.mælaborðlandbúnadarins.is Það hefur upplýsingagildi fyrir neytendur, bændur, stjórnvöld og aðra sem vilja nálgast upplýsingar um stöðu og þróun helstu upplýsinga og hagtalna í íslenskum landbúnaði. Dæmi um upplýsingar í mælaborðinu eru stuðningsgreiðslur til bænda, framleiðsla…Lesa meira

true

Erfið færð og hvasst við fjöll

Hálka eða snjóþekja er nú víða á vegum og sumsstaðar skafrenningur, samkvæmt tísti Vegagerðarinnar. Þungfært er á Laxárdalsheiði og í Álftafirði á Skógarströnd, ófært er á Fellsströnd. Þá er hvassviðri á Kjalarnesi þar sem vindur fer í 27 m/sek í hviðum. Ferð strætisvagns frá Mjódd til Akraness fellur niður samkvæmt tilkynningu frá Strætó kl. 12:15.Lesa meira

true

Ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum

Heilbrigðisráðuneytið vekur í tilkynningu athygli tilmælum sóttvarnalæknis þar sem hann ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum íbúa Íslands til áhættusvæða vegna Covid-19. Tilkynningin er eftirfarandi: „Á rúmlega einu ári heimsfaraldurs Covid-19 hafa yfir 130 milljónir manna sýkst af völdum SARS-CoV-2 veirunnar í meira en 200 löndum og dauðsföll eru tæplega 3 milljónir, þar af yfir 900…Lesa meira

true

Leiðrétt frétt vegna framboðsmála VG

Hér á vefnum var fyrir 45 mínútum sagt frá málefnafundi sem vera átti í kvöld með frambjóðendum VG. Í ljós hefur komið að mistök áttu sér stað við útsendingu tilkynningar frá skrifstofu VG í Reykjavík. Málefnafundurinn í kvöld er til kynningar á frambjóðendum í Suðvesturkjördæmi, en ekki Norðvesturkjördæmi, eins og sagt var í fréttinni. Það…Lesa meira

true

Nýtt fyrirkomulag Eyrarrósarinnar

Allt frá árinu 2005 hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair staðið saman að Eyrarrósinni; viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrirkomulag viðurkenningarinnar hefur verið með svipuðu sniði allt frá upphafi, en við endurnýjun samstarfssamnings í ár var ákveðið að endurskoða skipulagið með það í huga að styrkja Eyrarrósina enn frekar sem raunverulegan…Lesa meira