Fréttir

true

Nýir eigendur að Svefneyjum

Áslaug Magnúsdóttir, frumkvöðull og kaupsýslukona, hefur fest kaup á Svefneyjum á Breiðafirði ásamt Sacha Tueni unnusta sínum. Eyjarnar keyptu þau af afkomendum Dagbjartar Einarssonar, útgerðamanns í Grundavík og Birnu Óladóttur, en Dagbjartur keypti eyjarnar ásamt Þorsteini Jónssyni árið 1993. Svefneyjar eru ein einangraðasta bújörð landsins með töluverðum hlunnindum af æðavarpi og þara sem Þörungaverksmiðjan á…Lesa meira

true

Sprotasjóður styrkir

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik,- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Á dögunum var úthlutað úr sjóðnum og hljóta alls 42 verkefni styrki að þessu sinni. Meðal þeirra skóla sem hljóta styrki eru Grundaskóli á Akranesi, 400 þúsund krónur, og Grunnskóli Borgarfjarðar í samstarfi…Lesa meira

true

Hundrað bólusettir í Klifi

Um 100 manns voru bólusettir við Covid 19 í Snæfellsbæ síðastliðinn miðvikudag. Bólusett var í félagsheimilinu Klifi og gekk það mjög vel. Létu þeir sem verið var að bólusetja vel af sér þegar ljósmyndara bar að garði. Ekki fer frekari sögum af því hvort eftirköst hafi fylgt í kjölfar bólusetningarinnar, en líklegt að efnið hafi…Lesa meira

true

Búið er að bólusetja 12% þjóðarinnar

Nú þegar fyrsta ársfjórðungi 2021 er lokið hafa 49.300 einstaklingar verið bólusettir á landsvísu. „Bólusetningu miðar því vel og nú hafa rúmlega 12% þeirra sem áætlað er að bólusetja fengið bólusetningu eða myndað mótefni gegn veirunni,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Bólusetningar ganga vel á Vesturlandi, að sögn Þuru Bjarkar Hreinsdóttur hjúkrunarfræðings hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.…Lesa meira

true

Skessuhorn kemur út á morgun

Starfsfólk Skessuhorns er nú mætt hresst og endurnært úr páskaleyfi. Í dag verður lokið við vinnslu á blaði sem kemur út í fyrramálið, miðvikudaginn 7. apríl. Bent er á að hægt er til hádegis í dag að panta og senda inn auglýsingar til birtingar, sem og greinar og fréttir. Minnum á símann 433-5500 og netfangið…Lesa meira

true

Næsti áfangi Skógarhverfis í útboð

Nýverið auglýsti Akraneskaupstaður, í samvinnu við Veitur, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu, eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir í þriðja áfanga Skógarhverfis. Um er að ræða gatnagerð, stígagerð, götulýsingu og lagningu veitukerfa og fjarskiptalagna í nýbyggingarhverfinu Skógarhverfi 3 – áfanga A. Í verkinu felst m.a. gröftur á tæplega 30 þúsund rúmmetrum af efni, fylling í 43…Lesa meira

true

67 eignir voru seldar á Vesturlandi í febrúar

Í febrúarmánuði síðastliðnum voru 67 viðskipti með fasteignir á Vesturlandi, samkvæmt samantekt Þjóðskrár Íslands. 22 eignir í einbýlishúsum skiptu um eigendur, 32 íbúðir í fjölbýli, tvö viðskipti með atvinnuhúsnæði, átta sumarhús voru seld og þrjár eignir sem flokkast sem „annað.“ Velta í þessum viðskiptum var samtals 2.649 milljónir króna. Meðalverð einbýlishúss var 51 milljón króna,…Lesa meira

true

Bólusett í íþróttahúsinu

Miðvikudaginn 31. mars síðastliðinn var hafist handa við að bólusetja íbúa á Snæfellsnesi sem eru yfir 70 ára að aldri. Í Grundarfirði var brugðið á það ráð að fá íþróttahús bæjarins undir bólusetninguna og gekk verkið hratt og örugglega fyrir sig. Starfsmenn HVE og íþróttahússins sáu um að allt færi vel fram og að allir…Lesa meira

true

Skipulagsstofnun gefur jákvæða umsögn um aukna sorpurðun í Fíflholtum

Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sitt á matsskýrslu Sorpurðunar Vesturlands þar sem farið er fram á aukið starfsleyfi til urðunar sorps í Fíflholtum á Mýrum. Núverandi starfsleyfi gerir ráð fyrir að urða megi allt að 15 þúsund tonn á ári, en sótt var um stækkun á því í 25 þúsund tonn. Undanfarin tvö ár hefur…Lesa meira

true

Nýr Vilhelm kominn í flota Íslendinga

Vilhelm Þorsteinsson EA 11, nýtt skip til uppsjávarveiða sem var smíðað sérstaklega fyrir Samherja, sigldi inn Eyjafjörðinn í fyrsta sinn á föstudaginn langa. Vilhelm Þorsteinsson er stórt, glæsilegt og fullkomið skip, 89 metrar á lengd og 16,6 metrar á breidd. Burðargetan er vel yfir þrjú þúsund tonn í þrettán lestartönkum þar sem aflinn verður kældur…Lesa meira