Fréttir

true

Flutti til Íslands eftir 27 ár erlendis til að taka við starfi á Húsafelli

Ingibjörg Hjartardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Hótel Húsafells í Borgarfirði. „Þetta eru skrýtnir tímar að byrja í svona starfi núna, í þeim aðstæðum sem við erum að kljást við, en ég sé líka ýmsa kosti við þessa stöðu,“ segir Ingibjörg þegar Skessuhorn heyrði í henni. Ingibjörg hefur nokkur tengsl í Borgarfjörðinn en hún er…Lesa meira

true

Neikvæður viðsnúningur í rekstri tíu stærstu sveitarfélaganna

Áhrif kórónaveirunnar gætir víða og ekki síst í rekstri sveitarfélaga landsins. Ríkissjónvarpið tók nýverið saman upplýsingar um rekstur og horfur í afkomu tíu stærstu sveitarfélaga landsins. Þar kemur fram að árið 2019 var samanlagður rekstur þeirra jákvæður um 22,4 milljarða króna. Á síðasta ári varð algjör kúvending og benda bráðabirgðaniðurstöður til að rekstur þeirra hafi…Lesa meira

true

Bæjarstjórn lítur sementsóhappið alvarlegum augum

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðdegis í gær var samþykkt samhljóða ályktun vegna umhverfisóhapps þegar mikið magn sements fauk yfir hluta bæjarins aðfararnótt 5. janúar síðastliðinn. „Bæjarstjórn Akraness lítur óhappið alvarlegum augum en telur viðbrögð forsvarsmanna Sementsverksmiðjunnar til marks um að fyrirtækið líti málið sömu augum,“ segir í ályktun bæjarstjórnar. „Bæjarstjórn Akraness leggur áherslu á að…Lesa meira

true

Keppni í Dominos deild kvenna hefst í kvöld

Eins og kunnugt er hefst keppni að nýju í dag í meistaradeildinni kvenna í körfubolta. Domino‘s deild kvenna ríður á vaðið í kvöld, en 99 dagar eru síðan síðustu keppnisleikir fóru fram, 6. október 2020. Í kvöld eru fjórir leikir í deildinni, Fjölnir-Haukar, Breiðablik-Keflavík, Snæfell-KR og Valur-Skallagrímur. KKÍ og HSÍ hafa sett sóttvarnarreglur sem aðildarfélögum…Lesa meira

true

Fimm með veiruna á Vesturlandi

Í gær greindust sex kórónuveitusmit innanlands og var helmingur þeirra í sóttkví. 26 smit greindust hins vegar á landamærunum. Nú eru 164 í einangrun á landsvísu með virkt smit og 242 eru í sóttkví. Staðfest smit af kórónuveirunni eru nú í öllum landshlutum. Hér á Vesturlandi eru, samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á Vesturlandi, fimm veikir; þrír…Lesa meira

true

Leggja til að almenningur fái valfrelsi um ráðstöfun hluta útvarpsgjalds

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins er fyrsti flutningsmaður tillögu til þingsályktunar um ráðstöfun útvarpsgjalds. Aðrir þingmenn Miðflokksins eru meðflutningsmenn að tillögunni. Þar er lagt til að Alþingi feli mennta- og menningarmálaráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram frumvarp þess efnis að lögum um ráðstöfun útvarpsgjalds skuli breytt. Breytingin lúti að því að hverjum…Lesa meira

true

Auka ekki við veiðiráðgjöf úr loðnustofninum

Hafrannsóknastofnun hyggst ekki breyta þeirri loðnuráðgjöf sem stofnunin ákvað í lok síðasta árs, sem mælir með einungis 22 þúsund tonna veiði úr stofninum. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni lauk fyrir helgi loðnuleit á fimm skipum. Hafís náði yfir stóran hluta rannsóknasvæðisins og segir Hafró ljóst að mun minna magn mældist af loðnu en…Lesa meira

true

Hringrásarhagkerfið bætt með aukinni flokkun sorps

Í gær lagði umhverfisráðuneytið drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs í samráðsgátt stjórnvalda. Þar eru settar fram 24 aðgerðir í átt að hringrásarhagkerfi. Á yfirstandandi löggjafarþingi verður frumvarp um breytingar á úrgangslöggjöfinni lagt fram á þingi. Undirbúningur að stefnunni og frumvarpinu hefur staðið yfir í á þriðja ár hjá Umhverfisstofnun og í ráðuneytinu. „En til…Lesa meira

true

Íþróttabandalag Akraness heiðrar ÍATV

Nýverið ákvað stjórn Íþróttabandalags Akraness (ÍA) að heiðra hóp fólks sem stendur á bak við ÍATV fyrir fórnfúst starf fyrir félagið. Í tilkynningu frá ÍA sem birtist í Skinfaxa, tímariti Ungmennafélags Íslands, segir m.a: „Íþróttabandalag Akraness hrósar og þakkar þeim hópi fólks sem stendur á bak við ÍATV fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþrótta og…Lesa meira

true

Börn þurfa nú að sæta sóttkví

Frá og með deginum í dag verður börnum fæddum 2005 eða síðar skylt að sæta sóttkví með foreldri eða forráðamanni við komu til landsins, samkvæmt reglugerð nr. 1199/2020 um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerð þessa efnis. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin hefur verið…Lesa meira