Fréttir

true

Bein útsending frá fundi sveitarstjórnar í fyrsta skipti

Í dag eru merk tímamót í sögu sveitarfélagsins Borgarbyggðar því streymt verður frá fundi sveitarstjórnar í fyrsta skipti. Gefst íbúum og öðrum nú tækifæri til þess að fylgjast með sveitarstjórnarfundum í hljóði og mynd í rauntíma. „Þessi nýbreytni er liður í því að stuðla að auknum áhuga og þekkingu íbúa á málefnum sveitarfélagsins. Fundir sveitarstjórnar…Lesa meira

true

Ísland leikur sinn fyrsta leik á HM í kvöld

Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur sinn fyrsta leik á Heimsmeistaramótinu í Egyptalandi í kvöld, þegar liðið mætir Portúgal kl. 19:30. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Strákarnir spila í riðli með Portúgal, Alsír og Marokkó en Ísland og Portúgal þykja sterkustu liðin í riðlinum og leikurinn í kvöld því mikilvægur ef strákarnir vilja…Lesa meira

true

Breytingum frestað á aldursviðmiðum brjóstaskimana

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna skimana fyrir brjóstakrabbameini. „Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Skimunarráð sem starfar á vegum…Lesa meira

true

„Það á ekki að bitna á umhverfinu að við séum í rekstri“

Blikksmiðja Guðmundar á Akranesi hefur undanfarið tekið þátt í athygliverðu samstarfi með samtökum blikksmiðjueigenda á Norðurlöndum. Samstarfið felst í flokkun á öllu sorpi fyrirtækjanna auk þess sem skoðaðir eru möguleikar á að nýta eða endurnýta afgangs málma; afklippur sem falla til á verkstæðunum. Í samtali við Skessuhorn sagði Sævar Jónsson eigandi blikksmiðjunnar: „Af hverju erum…Lesa meira

true

Góður sigur hjá Snæfelli

Snæfellskonur höfðu betur gegn KR, unnu með 87 stigum gegn 75, þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gær. Snæfell byrjaði leikinn mun betur og var fljótlega komið með átta stig gegn engu en þá tók KR við sér og jafnaði leikinn í 8-8. Snæfell náði ekki að slíta sig frá KR í fyrsta leikhluta og…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu stórt

Skallagrímskonur þurftu að sætta sig við tap í Domino‘s deild kvenna í gær þegar þær heimsóttu Valskonur í fyrsta leik liðanna eftir að keppni í körfuknattleik hófst að nýju eftir samkomubann. Skallagrímskonur náðu að hanga í Valskonunum í byrjun leiks en strax í lok fyrsta leikhluta slitu Valskonur sig frá þeim og sigruðu að lokum…Lesa meira

true

Þrír mikilvægir málaflokkar sem þarf að ræða

Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, segir mikilvægt að atvinnumál með áherslu á nýsköpun og ferðaþjónustu verði sérstaklega rædd í aðdraganda alþingiskosninganna síðar á árinu. Einnig bendir hann á mikilvægi samgöngu- og menntamála. Hann segir brýnt að stjórnvöld hugi sérstaklega að eflingu nýsköpunar á landsbyggðinni, ráðist verði í nauðsynlegar samgöngubætur á Vesturlandi og að…Lesa meira

true

Landað í Hólminum um helgina

Í brunagaddi síðastliðinn sunnudag var landað fullfermi úr Kristborgu og Kára í Stykkishólmi. Þeir Magnús Kristinsson og Ólafur Valdimarsson lönduðu um þremur og hálfu tonni úr Kristborgu og Sigurður Páll Jónsson og sonur hans Bragi Páll, lönduðu fimm tonnum úr Kára. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson fréttaritari af þeim feðgum, þegar hann átti leið niður…Lesa meira

true

Rúnturinn endurvakinn á Akranesi

Í kvöld fór fram Facebook viðburðurinn “Bring back rúnturinn” á Akranesi. Viðburðinum sem stofnað var til af Alexander Aroni Guðjónssyni var ætlað að hvetja Skagamenn til að endurvekja hinn gamla rúnt um Skólabraut og nágrenni eða eins og segir í tilkynningu: “Endurvekjum rúntmenningu Skagamanna, fjölmennum á göturnar og rúntum fram í rauða nóttina. Alveg tilvalið…Lesa meira

true

Dósamóttaka Fjöliðjunnar á Akranesi opin á ný

Fjöliðjan á Akranesi hefur opnað flöskumóttöku sína á ný. Móttakan er opin virka daga frá kl. 08.00-11.45 og frá kl.13.00-15.30. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði voru starfsmenn í langþráðri pásu enda búið að vera mikið að gera í allan dag. Að sögn Þórdísar Ingibjartsdóttur hjá Fjöliðjunni var fólk farið að bíða við dyr flöskumóttökunnar…Lesa meira