Fréttir

true

Menntaskóli Borgarfjarðar og Síminn í fræðslusamstarf

Menntaskóli Borgarfjarðar og Síminn hófu samstarf nú í haust undir heitinu „Síminn skapar tækifæri fyrir sitt fólk.“ Markmið verkefnisins er að styðja við starfsfólks Símans til að afla sér frekari menntunar og því var leitað samstarfs við MB um fræðsluhliðina. Allt stefnir í að þrettán starfsmenn Símans verði skráðir nemendur MB í gegnum þessa námsleið…Lesa meira

true

Ítrekuð brot á sóttkví tilkynnt til lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi hefur vaxandi áhyggjur af einstaklingum sem ekki virða skimunarsóttkví eftir komuna til landsins. Síðastliðna viku hafa sex mál ratað inn á borð lögreglunnar á Vesturlandi þar sem grunur lék á að sóttkví hefði ekki verið virt. Raunar hafa slík mál komið í auknu mæli upp í fleiri lögsagnarumdæmum. Í einu tilviki mættu…Lesa meira

true

Tveir greindir í gær

Tveir voru greindir með Covid-19 innanlands í gær skv. uppfærðum tölum á covid.is, annar þeirra var í sóttkví við greiningu en hinn ekki. 149 eru nú í einangrun hér á landi vegna Covid-19 og 320 í sóttkví. 19 eru á sjúkrahúsi vegna veirunnar og enginn á gjörgæslu. Á Vesturlandi eru nú þrír í einangrun vegna…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan upplýsir um viðbrögð við mengunaróhappi

Síðdegis í gær hélt bæjarráð Akraneskaupstaðar ásamt umhverfis- og skipulagssviði sameiginlegan fund. Til hans voru kvaddir forsvarsmenn Sementsverksmiðjunnar, þeir Gunnar Sigurðsson framkvæmdastjóri og Þorsteinn Víglundsson stjórnarformaður. Gerður þeir grein fyrir málavöxtum, ástæðum óhappsins þegar sement fór yfir hluta byggðarinnar á Akranesi aðfararnótt 5. janúar, viðbrögð fyrirtækisins, úrvinnslu og aðgerðum verksmiðjunnar í framhaldinu. Fram kom á…Lesa meira

true

Heiður er íþróttamaður Umf. Reykdæla

Á mánudagskvöldið fór fram verðlaunaafhending Ungmennafélags Reykdæla til efnilegs íþróttafólks. Veitt voru verðlaun fyrir framfarir í körfubolta og sundi auk þess sem íþróttamður Reykdæla 2020 hlaut verðlaun. Í ljósi aðstæðna var verðlaunaafhendingin með óhefðbundnu sniði, bankað var heima hjá ungu köppunum og þeim komið á óvart með verðlaunin. Íþróttamaður Reykdæla árið 2020 er Heiður Karlsdóttir…Lesa meira

true

Gerðu allt það rétta í stöðunni

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru um nónbil í gær kallaðar út til aðstoðar þremur mönnum á gönguskíðum norðan við Þursaborg í Langjökli. Einn göngumannanna hafði snúið sig á fæti og komst því ekki lengra. Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks fór á svæðið á vélsleðum, bílum og snjóbílum. Fyrsti björgunarsveitarbíll kom að mönnunum um klukkan sex um kvöldið. Hæglætisveður…Lesa meira

true

Geiturnar þiggja barrtrén með þökkum

Nú þegar fólk er að koma fyrrum jólatrjám úr húsum sínum er vert að minna á að barrtré má nýta þrátt fyrir að hlutverki þeirra sé lokið innandyra. Jóhanna Þorvaldsdóttir geitabóndi á Háafelli í Hvítársíðu biðlar til nágranna sinna um að fá trén fyrir geitur sínar, sem njóta þess mjög að éta nálarnar, eins og…Lesa meira

true

Innkalla Monster drykki vegna aukaefna

Matvælastofnun vekur athygli á of miklu magni af aukefninu própýlenglýkól (E1520) í orkudrykkjunum Monster Lewis Hamilton LH 44 og Monster Vanilla Espresso. Innflytjandinn, Coca-Cola European Partners (CCEP), innkallar drykkina í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi vöruheiti: Vörumerki: Monster Vöruheiti: Lewis Hamilton LH44 Energy Drink Best fyrir dagsetning: Allar dagsetningar Strikamerki: 5060337508988…Lesa meira

true

Kallaðir út til aðstoðar göngumönnum

Björgunarsveitir af Vesturlandi hafa verið kallaðar út til aðstoðar skíðagöngumönnum sem staddir eru norðan við Þursaborg í Langjökli. Einn göngumannanna sneri sig á fæti. Mennirnir eru samkvæmt upplýsingum Skessuhorns vel búnir en þeir halda kyrru fyrir þar til hjálp berst. Farið er til móts við mennina á jeppum og snjósleðum.Lesa meira

true

Fjórir með Covid-19 á Vesturlandi

Þrjú kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og voru allir sem greindust í sóttkví. Fjórtán smit greindust á landamærunum, tvö smitanna eru virk og tólf bíða niðurstöðu úr mótefnamælingu. Í gær greindust einnig þrír með virkt smit í seinni landamæraskimun. Hér á Vesturlandi eru nú fjórir með Covid, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Þrír þeirra…Lesa meira