Fréttir

true

Skallagrímur með sjö leikmenn í æfingahópi yngri landsliða

Í hádeginu í gær tilkynnti KKÍ, Körfuknattleikssamband Íslands, þá leikmenn sem valdir hafa verið í sína fyrstu æfingahópa yngri landsliðana; U15, U16 og U18 ára landslið drengja og stúlkna fyrir verkefni sumarið 2021. Þar á meðal má finna nokkra galvaska Vestlendinga. Frá Snæfelli í Stykkishólmi voru tveir leikmenn valdir; Ingigerður Sól Hjartardóttir í U16 ára…Lesa meira

true

Hó! Hó! Hó! Stekkjarstaur er mættur

Fyrsti jólasveinninn mætti til byggða í nótt og vafalítið eru mörg börn hér á Vesturlandi sem varpa öndinni léttar að þeir hafi lifað af kóvíd, flensu og annað kvef. Því sveinkarnir ákváðu að mæta, þrátt fyrir ýmislegt vesén í mannabyggðum, og hengdu traust sitt á félagana í Kvikmyndafélagi Borgarfjarðar sem fönguðu stemninguna. Stóðu þeir meðal…Lesa meira

true

Fjarlægðu sprengiefni sem fannst við húsleit

Fréttavefur Ríkisútvarpsins greindi frá því nú síðdegis að Lögreglan á Vesturlandi hafi í dag óskað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru tildrög málsins þau að ökumaður var stöðvaður undir áhrifum fíkniefna í Borgarfirði fyrr í dag. Í kjölfarið fór fram húsleit í sumarhúsi í héraðinu og þar hafi fundist sprengiefni. Því var…Lesa meira

true

Ríkið sýknað af kröfu fyrrum skólameistara

Landsréttur hefur staðfest sýknudóm héraðsdóms yfir íslenska ríkinu í kæru sem Ágústa Elín Ingþórsdóttir fyrrverandi skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi lagði fram gegn menntamálaráðherra. Taldi Ágústa Elín að skipunartími hennar hefði framlengst sjálfkrafa til fimm ára þar sem henni hefði ekki verið tilkynnt innan nauðsynlegs fyrirvara að starfið yrði auglýst. Dómurinn taldi að ákvörðun mennta-…Lesa meira

true

Algengur verðmunur á jólabókum 1.500-2000 kr.

Í yfir helmingi tilfella var 1.500 kr. munur á hæsta og lægsta verði á vinsælum jólabókum í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 10. desember síðastliðinn. Í 12 tilfellum af 53 var verðmunur á bókum yfir 2.000 kr. en mest fór munurinn upp í 3.000 kr. Penninn.is var oftast með hæsta verðið í könnuninni en…Lesa meira

true

Hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðis

Í byrjun næsta árs mun Akraneskaupstaður efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við FÍLA, félag íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni er að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið. Svæðið sem um ræðir nær frá Sementsreitnum, þeim kjarna þar sem…Lesa meira

true

Opin vinnustofa í Grundarfirði

Fáir erlendir listamenn hafi getað notið dvalar í gestavinnustofum landsins undanfarið og hafa margar þeirra því staðið auðar fyrir vikið. En á því eru undantekningar. Alix Philippe, belgísk listakona búsett í London, hefur frá því í október dvalið í Gestavinnustofu Artak350 að Grundargötu 26 í Grundarfirði. Alix er nú að ljúka dvöl sinni hér á…Lesa meira

true

Lífland opnaði verslun á nýjum stað í morgun

Ný verslun Líflands var opnuð viðskiptavinum klukkan 10 í morgun. Nýja verslunin er við Digranesgötu 6 í Borgarnesi, í fyrrum Hagkaupshúsnæði, milli Bónuss og Geirabakarís. Áður var verslunin við Borgarbraut 55 í húsi sem nú stendur til að rífa á næstu misserum. Nokkrir dyggir viðskiptavinir voru mættir á hurðarhúninn á slaginu til að kaupa inn…Lesa meira

true

Skaginn 3X hlýtur Nýsköpunarverðlaun SSV 2020

Skaginn 3X á Akranesi hlýtur nýsköpunarverðlaun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir árið 2020. Ingólfur Árnason forstjóri Skagans tók við verðlaunagrip af þessu tilefni í Breið, nýsköpunarsetri á Akranesi í gær. Við val á verðlaunum þessum er sá háttur viðhafður að atvinnuráðgjafar SSV tilnefna þrjú fyrirtæki og voru þær lagðar fyrir stjórn SSV til afgreiðslu. Verðlaunagripinn…Lesa meira

true

Hafna gjaldskrárhækkun Heilbrigðiseftirlits Vesturland

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps síðastliðinn miðvikudag var tekin til afgreiðslu fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2021 og tillaga stjórnar HVE að gjaldskrárhækkun. Sveitarstjórn hafnaði tillögunni vegna hækkana sem í henni felast á þeirri forsendu að gjaldskrárheimildir séu hærri en raunkostnaður sem í þjónustunni felst. Jafnframt skoraði hreppsnefnd á önnur sveitarfélög á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að…Lesa meira