Fréttir

true

Prestarnir þrír flytja lagið Sagan af Jesúsi

Ellefti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það voru Prestarnir þrír,  sérarnir Þráinn Haraldsson, Jónína Ólafsdóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir, sóknarprestar í Garða- og Saurbæjarprestakalli sem fluttu lagið Beðið eftir Jesúsi. Hlekk á lagið er að finna hér fyrir neðan:  Lesa meira

true

Hollvinasamtökin hafa nú gefið 25 ný sjúkrarúm

Á árinu 2019 fóru Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands af stað með verkefni sem gengur út á að safna fé til kaupa á sjúkrarúmum. „Frá því að átakið hófst höfum við fært stofnuninni 25 sjúkrarúm og nýverið afhenti ég, fyrir hönd stjórnar, fimm rúm. Andvirði þessara 25 rúma er um 14,5 milljónir króna. Það voru 19 aðilar…Lesa meira

true

Jólaútvarp GSNB í loftið í næstu viku

Þessa dagana eru nemendur í Grunnskóla Snæfellsbæjar á fullu að undirbúa Jólaútvarp GSNB sem er orðinn fastur liður í starfi skólans á aðventu. Eitt af því sem nemendur gera er að selja auglýsingar til fyrirtækja. Búa þau sjálf til auglýsingarnar sem eru metnaðarfullar og skemmtilegar; bæði lesnar og sungnar. Það er nemendaráð skólans sem sér…Lesa meira

true

Leggja til endurskoðun á lögum um Breiðafjörð og tilnefningu á lista Ramsarsvæða

Þann 24. nóvember síðastliðinn birti Breiðafjarðarnefnd á vefsíðu sinni samantekt á framvindu og niðurstöðum verkefnis sem gengið hefur undið nafninu Framtíð Breiðafjarðar. Skýrslan hefur verið í vinnslu á tímabilinu 2019-2020 og er nú til umsagnar hjá sveitarstjórnum beggja vegna Breiðafjarðar. Þá er sömuleiðis kallað eftir athugasemdum íbúa og rennur frestur til að gera athugasemdir út…Lesa meira

true

Tottenhamklúbbur Kjósar- og Borgarfjarðarsýslna hinna fornu

Velgengni enska knattspyrnufélagsins Tottenham Hotspur er í hæstu hæðum um þessar mundir, en ansi langt er síðan liðið hefur trónað á toppnum í ensku knattspyrnunni eins og raunin hefur verið undanfarið. Vegna þessa hafa stuðningsmenn félagsins sprottið fram á ýmsum vettvangi enda oftar en ekki þurft að láta lítið fyrir sér fara á undanförnum árum.…Lesa meira

true

Leyfa æfingar í fyrstu deildum kvenna og karla

Nú fyrir skömmu samþykkti heilbrigðisráðuneytið undanþágubeiðni sem Körfuknattleikssambandið bað um vegna æfinga liða í 1. deildum karla og kvenna. Í gildandi sóttvarnareglum var einungis úrvalsdeildarliðum leyft að æfa. „KKÍ hefur í samvinnu við HSÍ og ÍSÍ sett mjög skýrar sóttvarnarreglur um framkvæmd æfinga aðildarfélaga, en reglurnar eru grundvöllur þess að hægt sé að hefja æfingar,“…Lesa meira

true

Fyrsti íslenski skólinn til að fá Grænfánann í tíunda sinn

Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar fékk í morgun sinn tíunda Grænfána fyrir framúrskarandi menntaverkefni. Er skólinn fyrstur allra skóla á Íslandi til að hljóta Grænfánann í tíunda skipti. Af því tilefni var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands viðstaddur þegar skólinn fékk fánann afhentan. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning til skóla sem vinna að menntun til sjálfbærni og má…Lesa meira

true

Sluppu með skrekkinn úr bílveltu

Bíll fór út af veginum skammt sunnan við Þorbergsstaði í Dölum á níunda tímanum í gærkvöldi. Mikil hálka var þegar óhappið átti sér stað. Að sögn lögreglu fór bíllinn hálfa aðra veltu og endaði á hliðinni. Þrennt var í bílnum og voru fluttir með sjúkrabíl til aðhlynningar á heilsugæslustöð HVE í Búðardal, en reyndust óslösuð.…Lesa meira

true

Jólastemning og hefð að baka laufabrauð á aðventunni

Í hugum margra er laufabrauðið eitt af séreinkennum íslensks jólahalds. Á vefsíðu Þjóðminjasafns Íslands um jólasiði kemur fram að elstu heimildir sem til eru um laufabrauðsgerð á Íslandi eru frá fyrri hluta 18. aldar þar sem laufabrauðinu er lýst sem sælgæti Íslendinga. Í dag er laufabrauðsgerð í hugum margra eitt af séreinkennum íslensks jólahalds á…Lesa meira

true

Lífland flytur verslun sína í dag á nýjan stað í Borgarnesi

Verslun Líflands við Borgarbraut 55 í Borgarnesi verður lokuð í dag, en starfsfólk vinnur nú að flutningi verslunarinnar. Í fyrramálið verður verslunin opnuð við Digranesgötu 6 í Borgarnesi, í fyrrum Hagskaupshúsnæði, milli Bónuss og Geirabakarís. Í tilefni þessa býður Lífland veglegan afslátt m.a. af reiðtygjum, hestavörum, fatnaði, skóm, bætiefnum og fleiru í versluninni á föstudag…Lesa meira