Fréttir

true

Þingsályktun um flutning höfuðstöðva Rarik á landsbyggðina

Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva Rarik ohf. á landsbyggðina. Meðflutningsmenn að tillögunni eru Silja Dögg Gunnarsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir, sem einnig eru þingmenn Framsóknarflokksins. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að stefna skuli að flutningi höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina og að kannað verði á grundvelli hagsmuna félagsins…Lesa meira

true

Ný athafnalóð verður til með efni úr höfninni

Dýpkunarskipið Dísa hefur undanfarið verið við dýpkunarframkvæmdir í Ólafsvíkurhöfn. Var í heildina dælt upp á milli 40 og 50 þúsund rúmmetrum. 12 þúsund af þessum rúmmetrum voru nýttir til landfyllingar á plani. Um síðustu helgi var svo klárað að keyra efni ofan á planið og var það B. Vigfússon sem sá um það. Keyrðu starfsmenn…Lesa meira

true

Hörð gagnrýni á meirihluta bæjarstjórnar vegna stjórnkerfisbreytinga

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag, sem fram fór í gegnum fjarfundarbúnað, voru teknar til fyrri umræðu stjórnkerfisbreytingar sem meirihluti Samfylkingar og Framsóknar með frjálsum í bæjarstjórn hefur ákveðið og taka eiga gildi um næstu áramót. Ítarlega var sagt frá þeim tillögum í síðasta Skessuhorni og hér á vefnum í gær. Síðari umræða um breytingarnar…Lesa meira

true

Gul og appelsínugul viðvörun um land allt

Í dag er gul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu og gildir til minættis í kvöld, en appelsínugul að auki fyrir svæðið sunnan jökla á suðausturlandi fram á morgundaginn. Fjallvegir eru nú ófærir og varað við ferðalögum milli landshluta enda lélegt skyggni og afar slæm akstursskilyrði. Við Faxaflóa er spáð norðan stormi, 18-25 m/s, með…Lesa meira

true

Björgunarsveitir komu vegfarendum til aðstoðar

Nokkur erill hefur verið hjá björgunarsveitum landsins frá því síðdegis í gær. Hefur ökumönnum sem lent hafa í vandræðum vegna færðar og veðurs, verið komið til aðstoðar. Bílar hafa setið fastir, lent utan vegar og einn bíll fór á hliðina. Flest verkefni björgunarsveita hafa verið á Norður- og Vesturlandi, en engar tilkynningar borist um slys…Lesa meira

true

Fjórtán greindust með Covid í gær

Fjórtán voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim sem greindust voru þrettán í sóttkví. Í dag eru 205 í einangrun hér á landi vegna veirunnar og 670 í sóttkví. 38 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú…Lesa meira

true

Þrettán hrossaræktarbú tilnefnd til verðlauna

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem Ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 50 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár…Lesa meira

true

Evrópskt markaðsleyfi fyrir bóluefni í sjónmáli

Lyfjastofnun Evrópu hafa borist umsóknir um skilyrt markaðsleyfi fyrir tvö bóluefni við Covid-19. Þetta er annars vegar bóluefni þróað af BioNTech og Pfizer og hins vegar bóluefni sem Moderna Biotech hefur þróað. „Stofnunin mun beita flýtimati á umsóknirnar. Niðurstaða gæti legið fyrir innan nokkurra vikna, en það fer eftir því hvort gögnin sem berast sýna…Lesa meira

true

Skaginn syngur inn jólin – gluggi númer 3

Þriðji gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það voru Ylfa og Hallur sem fluttu lagið Jingle Bell Rock. Hlekkinn á lagið má finna hér fyrir neðan.  Lesa meira

true

Fjölbreytt starfsemi nefnda og deilda um land allt hjá FKA

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, er öflugt tengslanet kvenna úr öllum greinum atvinnulífsins. Félagið er hreyfiafl sem eflir fjölbreytileika atvinnulífsins, styður kvenleiðtoga í að sækja fram og sameinar konur til aukins sýnileika og þátttöku um land allt. FKA Vesturland var stofnað fyrir nokkrum árum og er deild innan samtakanna. „Ef þú vilt stórefla tengslanetið þitt,…Lesa meira